Bæjarráð Grindavíkur - 1495. fundur
- 09.10.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:50
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1495
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Sævar Þór Birgissonvaramaður
- Gunnar Már Gunnarssonvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum.
1808002 Ráðningarmál: Sviðsstjórar.
Samþykkt samhljóða
1. Björgunarsveitin Þorbjörn: Nýr samstarfssamningur
Fulltrúar björgunarsveitarinnar mættu á fundinn.
Björgunarsveitin hefur óskað eftir viðræðum um nýjan samning um ýmsa þjónustu og aðstoð sem sveitin hefur innt af hendi.
Bæjarráð tekur vel í erindið og mun Björgunarsveitin gera uppkast að nýjum samningi.2. Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir
Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, nýráðinn sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fráfarandi sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindisbréf byggingarnefndar grunnskóla lagt fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða erindisbréfið.3. Leikskólahúsnæði; Aukning/stækkun
Sviðstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, nýráðinn sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og fráfarandi sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Erindisbréf byggingarnefndar leikskóla lagt fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða erindisbréfið.4. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fór yfir stöðuna á framkvæmdinni við Gerðavelli 17. Ljóst er að framkvæmdin mun fara fram úr þeim kostnaðaráætlunum sem lagðar voru fram í upphafi.
5. Ísland ljóstengt: framkvæmd
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir 35,5 mkr. viðauka vegna 5 km. vatnslagnar sem lögð yrði samhliða ljósleiðara.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að fjárhæð 35,5 milljónir sem fjármagnaðar verði með ónýttri fjárheimild annarra framkvæmda.6. Hundagerði - framkvæmd
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir viðauka vegna hundagerðis upp á 4 mkr.
Bæjarráð vísar málinu til umræðu í gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.7. Byggingarfulltrúi: starfshlutfall
Lögð fram tillaga að auglýsingu vegna byggingarfulltrúa fyrir Grindavíkurbæ.
Bæjarráð samþykkir auglýsinguna og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að auglýsa starfið.8. Sala á útistofum: Hraunbraut 3a og útikennslustofa við Laut
Lagt fram kauptilboð í útistofurnar að fjárhæð 3,6 milljónir.
Bæjarráð samþykkir tilboðið.9. Uppsetning Hreystigarðs í Grindavík: Kostnaðaráætlun og staðsetning
Frístunda- og menningarnefnd fór á fundi sínum, nr. 76 yfir samantekt sviðsstjóra. Nefndin er sammála um að staðsetning hreystigarðs sé óheppileg í Kúadal. Hreystigarður myndi nýtast betur nær íþróttasvæðinu. Nefndin fagnar hugmyndinni um hreystigarð sem er aðgengilegur öllum en sú útfærsla sem nefnd er í tillögunni er kostnaðarsöm og nefndin setur spurningarmerki við hvort tækin henti börnum jafnt sem fullorðnum.
Bæjarráð vísar málinu til umræðu í gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.Fylgiskjöl
10. Kútter Fríða RE13 - Viljayfirlýsing
Frístunda- og menningarnefnd fór yfir erindi frá Ólafi Ragnari á fundi nr. 76. Erindinu vísað til bæjarráðs. Nefndin samþykkir að skrifað sé undir viljayfirlýsingu. Viljayfirlýsingin snýr að hýsingu á líkaninu og stingur nefndin uppá að líkanið gæti verið í opnu rými t.d. á bókasafninu eða á annarri hæð á Víkurbraut 62 fyrir framan afgreiðslu bæjarskrifstofu.
Bæjarráð samþykkir erindið að því gefnu að fyrir liggi full fjármögnun.11. Upplýsinga- og markaðsfulltrúi
Lagt fram.
12. Forkaupsréttur vegna sölu á Sighvati GK 357
Bæjarráð samþykkir samhljóða að falla frá forkaupsrétti.