Bæjarráð Grindavíkur - 1465. fundur
- 05.12.2017
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1465
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Þórir Sigfússonvaramaður
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Leikskólinn Laut: Eftirlitsskýrsla frá HES
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mætti á fundinn og kynnti málið.
Lögð fram til kynningar eftirlitsskýrsla HES.2. Reglur og gjaldskrá: Gatnagerðargjöld
Afgreiðslu málsins frestað til næsta bæjarráðsfundar.
3. Kalka - Sorpeyðingarstöð Suðurnesja: Kynning á mögulegri sameiningu SS og Sorpu
Stjórn Kölku óskar eftir afstöðu bæjarfélagsins til þess hvort viðræðum SS og Sorpu verði haldið áfram um mögulega sameiningu fyrirtækjanna.
Bæjarráð samþykkir að halda áfram viðræðum um mögulega sameiningu fyrirtækjanna.4. Slökkvilið Grindavíkur: Beiðni um viðauka
Óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 480.000 kr. vegna reksturs slökkviliðsbifreiða.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að fjárhæð 480.000 kr. sem fjármagnaður verði með lækkun á handbæru fé.5. Kvennaathvarfið: Styrkbeiðni 2017
Bæjarráð samþykkir að styrkja Kvennaathvarfið á árinu 2018 um 50.000 kr.
6. Styrkbeiðni: Samanhópurinn fyrir árið 2018
Bæjarráð hafnar styrkbeiðninni með 2 atkvæðum gegn einu atkvæði Ásrúnar.
7. Snorrasjóður: Ósk um styrk árið 2018
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.