Bæjarráð Grindavíkur - 1489. fundur
- 04.09.2018
- Fundargerð
- Kl. 17:00 - 21:05
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1489
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Sigurður Óli Þórleifssonvaraformaður
- Helga Dís Jakobsdóttiraðalmaður
- Páll Valur Björnssonáheyrnarfulltrúi
- Hallfríður G Hólmgrímsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Birgitta H. Ramsay Káradóttirvaramaður
Starfsmenn
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Skólahúsnæði: Hönnun og framkvæmdir
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt er til að stofnuð verði bygginganefnd um stækkun grunnskólahúsnæðis.
Bæjaráð samþykkir að skipuð verði bygginganefnd og óskar eftir tilnefningum í nefndina frá fræðslunefnd fyrir næsta bæjarráðsfund. Nefndin mun hefja störf þegar búið er að ráða í starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs en hann mun verða starfsmaður nefndarinnar.2. Íbúðir aldraðra: Endurbætur
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram beiðni íbúa í Víðihlíð um endurbætur í eldhúsi íbúðarinnar.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.3. Sala á útistofum: Hraunbraut 3a og útikennslustofa við Laut
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram greinargerð frá umsjónarmanni fasteigna og 2 tilboð í umsýslu við sölu eignanna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.4. Gjaldskrá: Skólavist milli 16:00 og 17:00
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs um lágmarksfjölda barna milli 16:00 og 17:00.
Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum, inn á næsta bæjarráðsfund, um nýtingu á þessari þjónustu sl. 5 ár.5. Lengd viðvera Grunnskóla í Íþróttahúsinu
Sviðsstjóri Félagsþjónustu- og fræðslusviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að fylgja málinu eftir og leggja mögulegar lausnir á málinu inn á næsta fund bæjarráð.7. Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka 2018
Skólastjóri leikskólans Lautar óskar eftir viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2018, að fjárhæð 400.000 kr. vegna samvinnu við Heilsuvernd.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðaukann og að hann verði fjármagnaður með lækkun á handbæru fé.8. Fiskeldi á iðnaðarsvæði i5: Matsáætlun.
Erindi frá skipulagsstofnun lagt fram ásamt frummatsskýrslu. Í erindinu er óskað eftir umsögn Grindavíkurbæjar skv. 10. gr. laga nr. 106/200 á frummatskýrslu fyrirhugaðrar stækkunar fiskeldis Matorku.
Matorka starfrækir fiskeldi í Húsatóftum í Grindavík, bæði í eldri stöð með 200 tonna leyfi og í nýrri stöð sem er með 3.000 tonna leyfi. Nú er verið að sækja um stækkun á fiskeldi fyrir stöð staðsettri á skipulagssvæði i5 úr 3.000 tonnum í 6.000 tonn.
Skipulagsnefnd telur að vel sé gert grein fyrir framkvæmdinni í skýrslunni.
Skipulagsnefnd telur valkost 3 er varðar fráveitu á bls. 70 og 71 sem er út fyrir stórstraumsfjöru vænlegasta kostinn.
Að öðrum kosti gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við hvernig er gert ráð fyrir framkvæmdinni og umhverfi, umhverfisáhrifum og mati framkvæmdaaðila á þeim og telur að ekki þurfi að kanna aðra þætti mótvægisaðgerðir eða vöktun að svo stöddu. Umrædd framkvæmd er háð framkvæmdaleyfi og byggingarleyfi hjá Grindavíkurbæ.
Bæjarráð tekur undir bókun skipulagsnefndar.9. Uppsetning Hreystigarðs í Grindavík: Kostnaðaráætlun og staðsetning
Málið var tekið fyrir á 487. fundi bæjarstjórnar og þar samþykkt að vísa því til bæjarráðs til frekari vinnslu.
Bæjarráð vísar málinu til sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og leggur til að málið verði tekið upp í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2019.10. Umferðaröryggisáætlun: Aðkoma um Grindavíkurveg
Lögð fram gögn frá 2015 um undirgöng undir Grindavíkurveg við gatnamót Grindavíkurvegar og Suðurhóps.
Bæjarráð telur brýnt að auka öryggi barna sem leið eiga yfir Grindavíkurveginn og felur bæjarstjóra að hafa samband við Vegagerðina vegna málsins.11. Húsnæðissamvinnufélag: Hugsanleg stofnun slíks félags í Grindavík
Óskað er eftir upplýsingum um hvað meirihluti bæjarstjórnar hefur í hyggju varðandi stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar.
Meirihlutinn hefur í hyggju að leita leiða til að stofna húsnæðissamvinnufélag í samstarfi við hagsmunaaðila og verður settur kraftur í málið á næstu mánuðum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að kanna hversu margir eru í þörf fyrir slíkt húsnæði og falli undir tekjuviðmiðin.12. Fjárhagsáætlun 2019-2022: Grindavíkurbær og stofnanir
Tímarammi og forsendur fyrir fjárhagsáætlun 2019-2020 lagður fram.
Einnig er lagt fram yfirlit yfir staðgreiðslutekjur 2018 og frumáætlun staðgreiðslutekna fyrir árið 2019.
Bæjarráð samþykkir tímaramma og forsendur fjárhagsáætlunar.13. Fasteignagjöld 2018
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusvið kynnti samanburð Byggðastofnunar á fasteignagjöldum árið 2018, á 26 þéttbýlisstöðum.
Samanburðurinn leiðir í ljós að fasteignagjöld í Grindavík eru með þeim lægstu á landinu. Samanburður við þéttbýlisstaði sem eru með sambærilegt fasteignamat og Grindavík sýnir að fasteignagjöld eru lægst í Grindavík í þeim hópi.14. Umsókn um launalaust leyfi
Jóhann Árni Ólafsson óskar eftir launalausu ársleyfi til að stunda meistaranám í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði.
Fyrir liggur jákvæð umsögn sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.
Bæjarráð samþykkir launalaust leyfi.15. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja: Tilnefning fulltrúa í heilbrigðisnefnd
Bæjarráð samþykkir að Reykjanesbær fái 2 fulltrúa og að nefndin kjósi sér formann á fyrsta fundi.
16. Sóknaráætlun SSS 2015: tilnefningar í samráðshóp
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja óskar eftir því að Grindavíkurbær tilnefni fjóra aðila í úthlutunarnefnd sjóðsins.
Bæjarráð tilnefnir eftirtalda:
Guðmundur Grétar Karlsson
Ómar Davíð Ólafsson
Marta Sigurðardóttir
Helga Dís Jakobsdóttir17. Heilsueflandi samfélag fyrir yngstu og elstu íbúa Grindavíkur
Lögð fram beiðni frá Jeanette Sicat um viðræður um verkefni innan Heilsueflandi samfélags sem snýr að heilsueflingu yngstu og elstu íbúa Grindavíkur.
Bæjarráð vísar málinu til frístunda- og menningarnefndar.18. Húsnæðismál Lionsklúbbs Grindavíkur
Lionsklúbbur Grindavíkur óskar eftir að fá afnot af Gesthúsi fyrir starfsemi klúbbsins.
Bæjaráð getur ekki orðið við erindinu.19. SÍM - Residency, gestavinnustofur í Gesthúsi
SÍM, samband ísl. myndlistarmanna óskar eftir samstarfi við rekstur gestavinnustofu fyrir erlenda listamenn í Gestshúsi.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.20. Ný persónuverndarlög: Skjalavarsla og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila
Lagt fram til kynningar bréf Þjóðskjalavarðar til sveitarfélaga sem eru afhendingarskyld til Þjóðskjalasafns Íslands.
Vakin er sérstök athygli á að réttur til að gleymast á ekki við sveitarfélög enda vinna þau skjalavistun í þágu almannahagsmuna. Engu má eyða úr skjalasafni sveitarfélagsins nema með sérstakri heimild þjóðskjalavarðar.21. Upplýsinga- og skjalafulltrúi Grindavíkurbæjar
Upplýsinga- og skjalafulltrúi hefur sagt upp störfum frá og með 1. ágúst 2018. Starfslok verða því í síðasta lagi 1. nóvember nk.
Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að vinna málið áfram fyrir næsta bæjarráðsfund.23. Bæjarstjórn Grindavíkur: Gestir á bæjarstjórnarfundum
Lagt fram til kynningar viðmið um gesti á bæjarstjórnarfundum.
24. Fundargerðir: Fjallskilanefnd
Fundargerð fjallskilanefndar dags. 29. ágúst 2018 er lögð fram til kynningar. Réttardagur er ákveðinn föstudaginn 14. september nk.