Bæjarráð Grindavíkur - 1450. fundur
- 04.07.2017
- Fundargerð
- Kl. 16:00 - 18:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1450
- Ritari: Fannar Jónasson
Nefndarmenn
- Kristín María Birgisdóttirformaður
- Hjálmar Hallgrímssonvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Magnús Andri Hjaltasonvaram. áheyrnarfulltrúa
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
Í upphafi fundar minntist bæjarráð Hallgríms Bogasonar með augnabliks þögn. Hallgrímur var á árum áður bæði formaður bæjarráðs og forseti bæjarstjórnar Grindavíkur. Auk þess var hann um tíma formaður Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Hallgrímur lést á dögunum eftir baráttu við krabbamein. Bæjar
1. Sjómannagarður: útikennslusvæði.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs mætti á fundinn og kynnti hann málið. Hann óskar eftir 5.000.000 kr. viðauka við fjárhagsáætlun til þess að halda áfram vinnu við sjómannagarðinn.
Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 5.000.000 kr. sem fjármagnaður verður með lækkun á handbæru fé.2. Beiðni um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs mætti á fundinn, kynnti málið og lagði fram umsókn um námsvist ásamt greinargerð.
Bæjarráð hafnar umsókninni.3. Leikskólinn Laut: Beiðni um viðauka 2017, TV-einingar
Leikskólastjórinn Laut óskar eftir heimild til greiðslu TV-eininga vegna markaðs- og samkeppnisaðstæðna. Þá óskar leikskólastjórinn eftir viðauka við fjárhagsáætlun að fjárhæð 600.000 kr. vegna þessa.
Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun 2017 að fjárhæð 600.000 kr. sem fjármagnaður verður með lækkun á handbæru fé.4. Reglur um sí- og endurmenntun starfsmanna Grindavíkurbæjar
Bæjarstjóri greindi frá tillögum um breytingar á reglum um sí- og endurmenntun starfsmanna Grindavíkurbæjar, en reglur þessar ber bæjarráði að endurskoða ekki sjaldnar en á tveggja ára fresti.
Bæjarráð samþykkir fram komnar tillögur að breytingum á reglunum.5. Samband ísl. sveitarfélaga: Landssöfnun vegna náttúruhamfaranna á Grænlandi
Þess er óskað að sveitarfélögin leggi því máli lið að styrkja Grænlendinga vegna flóðöldu sem gekk á land á Grænlandi þann 18. júní sl.
Bæjarráð samþykkir að styrkja landssöfnunina Vinátta í verki með 250.000 kr. framlagi.6. Fundargerðir: Brunavarnir Suðurnesja 2017
Fundargerðir 18., 19. og 20. fundar lagðar fram.