Bæjarráð Grindavíkur - 1440. fundur
- 04.04.2017
- Fundargerð
- Kl. 16:30 - 19:00
- í bæjarstjórnarsal
- Fundur nr. 1440
- Ritari: Jón Þórisson
Nefndarmenn
- Hjálmar Hallgrímssonformaður
- Kristín María Birgisdóttirvaraformaður
- Ásrún Helga Kristinsdóttiraðalmaður
- Marta Sigurðardóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Þórissonsviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Fannar Jónassonbæjarstjóri
1. Daggæsla í heimahúsi: Tillögur um eflingu þjónustu
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessu máli.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs, ásamt sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið að vinna málið áfram og leggja málið fyrir næsta bæjarráðsfund.2. Knattspyrnudeild UMFG: beiðni um framlengingu samnings um verktöku við umsjón mannvirkja 2017
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sat fundinn undir þessu máli.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að semja við knattspyrnudeildina um framlengingu á samningi og leggja fyrir bæjarráð.3. Ungmennafélag Grindavíkur: Áskorun frá UMFG
Bréf frá fólki úr íþróttahreyfingunni í Grindavík um að framkvæmdum við íþróttamannvirki verði flýtt er lagt fram.
Bæjarráð bendir á að nýtt íþóttahús er í hönnun og gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næsta ári.4. TG Raf: Bréf vegna þjónustusamnings
Byggingafulltrúi sat fundinn undir þessu máli.
Bréf frá TG raf ehf. er lagt fram.5. Þjónustusamningar: við iðnaðarmenn
Byggingafulltrúi sat fundinn undir þessu máli.
Bæjarráð felur byggingafulltrúa að vinna málið áfram.6. Staðarvör 4: Ósk um lokaúttekt.
Byggingafulltrúi sat fundinn undir þessu máli.
Erindi frá eigendum að Staðarvör 4 er lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að bjóða eigendum að Staðarvör 4 að koma á næsta fund bæjarráðs.7. Sölutilboð: lóðir við Víkurbraut og Sunnubraut
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessu máli.
Bæjarráð hafnar sölutilboði lóðanna.8. Umsókn um lóð: Víðigerði fjölbýli
Byggingafulltrúi sat fundinn undir þessu máli.
Málinu er frestað.9. Ársuppgjör 2016: Grindavíkurbær og stofnanir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir drög að ársreikningi Grindavíkurbæjar og stofnana hans árið 2016.
Bæjarráð samþykkir ársreikninginn og vísar honum til endurskoðunar og afgreiðslu bæjarstjórnar í samræmi 18. gr. og 61. gr. laga nr. 138/2011.10. Markaðsátak á Reykjanesi: Ferðamannaleiðin Blue Diamond
Málinu er frestað til næsta fundar.
11. Lionsklubbur Grindavíkur: Ósk um styrk
Málinu er frestað til næsta fundar.
12. Nefndarsvið Alþingis, beiðni um umsögn: flutningur Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar
Mál tekið á dagskrá bæjarráðs með afbrigðum.
Málið hefur margsinnis komið inn á borð bæjarráðs og hefur afstaðan ekki breyst síðan þá.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar styður að Alþingi feli dómsmálaráðherra að hefja undirbúning að flutningi Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar.