Afgreiðslunefnd byggingarmála - 43. fundur
- 23.01.2020
- Fundargerð
- Kl. 13:00 - 13:15
- á skrifstofu byggingafulltrúa
- Fundur nr. 43
- Ritari: Bjarni Rúnar Einarsson
Nefndarmenn
- Íris Gunnarsdóttirstarfsmaður tæknisviðs
- Bjarni Rúnar Einarssonbyggingarfulltrúi
1. Víkurhóp 9-11 - Umsókn um byggingarleyfi
Grindin ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir parhús samkvæmt teikningum frá JeES arkitektum dags. 09.01.2020.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið þegar skilyrði 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt.