Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Fólk með fötlun

Grindavíkurbær veitir þjónustu í þágu fólks með fötlun með það að markmiði að styðja við sjálfstætt líf, þátttöku og lífsgæði til jafns við aðra. Þjónustan er ætluð einstaklingum og fjölskyldum þeirra og getur verið bæði til skemmri eða lengri tíma.

Hvaða þjónusta er í boði?

Þjónusta við fólk með fötlun er veitt í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga og lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Þjónustan er skipulögð með það að leiðarljósi að mæta ólíkum þörfum og aðstæðum og getur verið veitt til skemmri eða lengri tíma. Hér að neðan má finna upplýsingar um helstu úrræði og tengla til að sækja um þjónustu.