Fjárhagsaðstoð
Fjárhagsaðstoð er veitt samkvæmt lögum þegar einstaklingar eða fjölskyldur geta tímabundið ekki séð fyrir sér. Aðstoðin miðast við tekjur og aðstæður og getur í undantekningum verið aukin.
Hver geta sótt um?
Fjárhagsaðstoð er ætluð einstaklingum og fjölskyldum sem vegna aðstæðna sinna geta ekki tímabundið séð fyrir sér. Ástæður geta meðal annars verið lág laun, atvinnuleysi, veikindi eða aðrar félagslegar aðstæður.
Samkvæmt lögum ber einstaklingum skylda til að framfæra sjálfa sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Sveitarfélagið hefur jafnframt skyldu til að veita aðstoð þegar þörf er á.
Hvernig er aðstoðin metin?
Fjárhagsaðstoð er metin út frá heildaraðstæðum umsækjanda. Litið er m.a. til:
- tekna
- fjölskyldugerðar
- húsnæðisaðstæðna
- framfærslu og annarra skuldbindinga
Allar tekjur eru taldar með í útreikningum, svo sem laun, lífeyrir og styrkir. Undantekning eru umönnunarbætur vegna barna með fötlun.
Hámarksfjárhæðir
Hámarksfjárhæðir fjárhagsaðstoðar eru:
- 176.500 kr. á mánuði fyrir einstakling
- 396.947 kr. á mánuði fyrir hjón eða sambúðarfólk
Í undantekningartilvikum er heimilt að veita viðbótarstuðning vegna sérstakra aðstæðna, í samræmi við reglur um fjárhagsaðstoð.
Umsókn og nánari upplýsingar
Sótt er um fjárhagsaðstoð rafrænt. Starfsfólk félagsþjónustu Grindavíkur metur umsóknir veita jafnframt ráðgjöf eftir þörfum.
- Reglur um fjárhagsaðstoð
- Umsókn um fjárhagsaðstoð