Félagsleg ráðgjöf
Félagsleg ráðgjöf er ætluð einstaklingum og fjölskyldum sem þurfa upplýsingar, leiðsögn eða stuðning vegna aðstæðna í daglegu lífi. Ráðgjöfin felur bæði í sér fræðslu um félagsleg réttindi og persónulegan stuðning þegar á reynir. Þjónustan er veitt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um málefni fatlaðs fólks.
Hvað felst í félagslegri ráðgjöf?
Félagsleg ráðgjöf er samtal og stuðningur fyrir fólk sem stendur frammi fyrir áskorunum í lífinu. Ráðgjafar veita upplýsingar, aðstoða við að greina stöðu mála og leiða fólk áfram í úrræði sem geta hjálpað.
Ráðgjöfin er bæði ætluð einstaklingum og fjölskyldum og miðar að því að styrkja stöðu fólks og auka yfirsýn yfir næstu skref.
Félagsleg ráðgjöf er veitt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir.
Dæmi um málefni sem félagsleg ráðgjöf tekur til
- Uppeldis- og samskiptavandi
- Skilnaður, forsjár- og umgengnismál
- Fjárhagslegar áskoranir
- Húsnæðismál og stuðningur í búsetu
- Atvinnumál og endurhæfing
- Ráðgjöf og þjónusta vegna fatlaðs fólks og fjölskyldna þeirra
Ef þú ert óviss hvort erindi þitt eigi heima í félagslegri ráðgjöf er alltaf í lagi að hafa samband og fá leiðsögn.
Trúnaður og persónuvernd
Öll meðferð mála fer fram í trúnaði. Farið er með persónulegar upplýsingar samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd.
Hvernig sæki ég um?
Sótt er um félagslega ráðgjöf í gegnum þjónustugátt Grindavíkur.