Farsæld barna
Öll börn og fjölskyldur eiga rétt á þeirri þjónustu sem þau þurfa þegar á þarf að halda. Í Grindavík er unnið að samþættri þjónustu þar sem foreldrar og börn hafa aðgang að tengilið sem veitir upplýsingar, aðstoð og styður við samræmingu þjónustu eftir þörfum.
Farsæld barna í Grindavík
Farsæld barna snýst um að börn og fjölskyldur fái samfelldan, samræmdan og aðgengilegan stuðning þegar á þarf að halda. Markmiðið er að þjónusta ólíkra kerfa vinni saman með hagsmuni barnsins að leiðarljósi án þess að foreldrar þurfi sjálfir sendast á eigin ábyrgð milli þjónustuaðila.
Lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna leggja áherslu á að börn fái snemmtækan stuðning, að þjónusta sé samhæfð og að fjölskyldur hafi einn tengilið sem er foreldrum og börnum innan handar og aðstoðar við að sækja þjónustu við hæfi.
Tengiliður í þágu farsældar barns
Öll börn og foreldrar eiga rétt á aðgangi að tengilið eftir þörfum. Tengiliður er sá aðili sem foreldrar og börn geta leitað beint til, fengið ráðgjöf og aðstoð við að finna rétta þjónustu, án þess að þurfa að fara á marga staði.
Tengiliður hefur yfirsýn yfir þjónustukerfið, veitir upplýsingar og styður foreldra og barn við að rata í gegnum kerfið og sækja þjónustu við hæfi. Hann starfar alltaf með hagsmuni barnsins að leiðarljósi og í samráði við foreldra og barn.
Tengiliður barns er starfsmaður í nærumhverfi þess og fer eftir aldri og aðstæðum barnsins, t.d. starfsmaður heilsugæslu, skóla eða í félagsþjónustu sveitarfélagsins.
Hvernig er hægt að leita eftir samþættri þjónustu?
Foreldrar og börn geta leitað sjálf til tengiliðar í nærumhverfi barnsins, til dæmis í skóla eða heilsugæslu. Einnig er hægt að beiðni um tengilið gegnum þjónustugátt Grindavíkur.