Barnavernd
Ef þú hefur áhyggjur af því að barn búi við aðstæður sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu, líðan eða þroska þess, er mikilvægt að senda tilkynningu til barnaverndar. Barnavernd er til staðar til að styðja börn og fjölskyldur þegar á þarf að halda.
Hlutverk barnaverndar
Markmið barnaverndar er að tryggja börnum og ungmennum viðunandi uppeldisskilyrði á heimili sínu. Það er gert með því að:
- styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu
- veita börnum og ungmennum stuðning þegar þau eru í vanda stödd
- grípa til viðeigandi úrræða þegar aðstæður krefjast
Starfsmenn barnaverndar kanna aðstæður barna sem talið er að búi við óviðunandi aðstæður og beita þeim úrræðum sem henta hverju máli. Þau geta meðal annars verið:
- ráðgjöf eða meðferð
- persónuleg ráðgjöf
- tilsjón eða eftirlit á heimili
- stuðningsfjölskylda
- tímabundin vistun af ýmsu tagi
Ávallt er horft til hagsmuna barnsins við ákvarðanatöku.
Tilkynningarskylda
Öllum ber skylda til að tilkynna til barnaverndarþjónustu ef ástæða er til að ætla að barn:
- búi við óviðunandi uppeldisaðstæður
- verði fyrir ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi
- búi við aðstæður sem stofna heilsu eða þroska þess í alvarlega hættu
Einnig er skylt að tilkynna ef grunur leikur á að lífi ófædds barns sé stofnað í hættu.
Ef þú telur að barn sé í bráðri hættu skaltu hringja strax í 112.
Nafnleynd
Almenningur getur sent tilkynningu til barnaverndar undir nafnleynd.
Þeir sem hafa í starfi sínu afskipti af börnum, svo sem starfsfólk leikskóla, skóla, frístundastarfs og heilbrigðisstofnana, njóta ekki nafnleyndar og bera sérstaka tilkynningarskyldu.
Tenglar:
- Tilkynna til barnaverndar
- Barnaverndarlög
- Barna- og fjölskyldustofa
- Farsæld barna