Bæjarstjóri
Bæjarstjóri í Grindavík er Pétur G. Markan. Hann er framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og ber ábyrgð á daglegri starfsemi þess.

Pétur G. Markan
Pétur G. Markan tók við starfi bæjarstjóra í júlí 2026.
Hlutverk bæjarstjóra
Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsfólks sveitarfélagsins og ber ábyrgð á daglegri stjórnsýslu bæjarins. Hann tryggir að starfsemi sveitarfélagsins sé í samræmi við lög, samþykktir og ákvarðanir kjörinna fulltrúa.
Bæjarstjóri situr fundi bæjarstjórnar og hefur þar málfrelsi, tillögurétt og bókunarrétt. Hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn. Þá á hann einnig rétt á setu á fundum nefnda og ráða sem bæjarstjórn skipar.
Hlutverk bæjarstjóra er að undirbúa fundi bæjarstjórnar, bæjarráðs og annarra nefnda þannig að mál séu vel upplýst áður en ákvörðun er tekin. Hann sér jafnframt um að samþykktar ákvarðanir komist til framkvæmda, nema bæjarstjórn hafi falið öðrum það hlutverk.
Bæjarstjóri er prókúruhafi sveitarfélagsins og getur, með samþykki bæjarstjórnar, veitt öðrum starfsmanni prókúru. Hann undirritar skjöl sem fela í sér skuldbindingar fyrir sveitarfélagið, svo sem vegna kaupa og sölu fasteigna, lántöku, ábyrgða og annarra ráðstafana sem krefjast samþykkis bæjarstjórnar.
Hafa samband við bæjarstjóra
Hægt er að panta viðtal við bæjarstjóra í þjónustuveri Grindavíkur með því að senda póst á grindavik@grindavik.is eða gegnum síma 420-1100.