Skipulag
Aðalskipulag Grindavíkur mótar framtíðarþróun bæjarins. Þar er ákveðið hvernig land er nýtt, hvar byggð og atvinnustarfsemi þróast og hvernig samspil byggðar, samgangna og umhverfis er skipulagt til lengri tíma.

Aðalskipulag Grindavíkur 2018-2032
Aðalskipulag er skipulagsáætlun sem nær til alls lands sveitarfélagsins. Sveitarstjórn ber ábyrgð á gerð aðalskipulags og er gildistími þess að lágmarki 12 ár.
Skipulagsstofnun staðfesti Aðalskipulag Grindavíkur 2018-2032 þann 3. desember 2020. Með gildistöku þess féll úr gildi aðalskipulag Grindavíkur 2010–2030 ásamt síðari breytingum.
Undirrituð gögn aðalskipulagsins eru einnig aðgengileg í skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.
- Þéttbýlisuppdráttur
- Sveitarfélagsuppdráttur
- Skýringaruppdrættir – kortahefti
- Greinagerð aðalskipulags Grindavíkur 2018-2032
- Forsendu- og umhverfisskýrsla
Hverfisskipulag
Deiliskipulag
Vegir í náttúru Íslands
Bæjarstjórn samþykkti á 517. fundi sínum þann 27. apríl 2021 breytingar á skrá um vegi í náttúru Íslands.
•Verndarsvæði í byggð
•Samþykktir bæjarstjórnar
•Vísa á kortavef og þjónustugátt
•Húsakannanir