Þjónustumiðstöð Grindavíkur
Hafnargötu 24, sími 426 8402.
Bakvaktanúmer (eftir kl. 17): 660 7343.
Netfang: thjonusta@grindavik.is
Opið er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 7 til 16:45 og föstudaga frá 7 til 12.
Yfirmaður þjónustumiðstöðvar er Siguður Rúnar Karlsson, Sími 660 7302 - siggigh@grindavik.is
Þjónustumiðstöðin sér um alla almenna þjónustu við íbúa bæjarins, s.s. viðhald á fasteignum og tækjum bæjarins, snjóruðning, hreinsunarátak og fjölmargt fleira. Hægt er að panta sorptunnur og varahluti í þær.
Snjómokstur:
Í forgangi eru aðalumferðargötur þannig að fært sé að Grindavíkurvegi, skólum, leikskólum, slökkviliðsstöð, heilbrigðisstofnun, niður að höfn, og ákveðinn öryggishring sem nýtist flestum bæjarbúum. Samhliða snjómokstri eru almenningsbílastæði í miðbænum mokuð enda gerð þeirra kostuð af sveitarfélaginu. Plön og heimkeyrslur við íbúðarhús og fyrirtæki eru ekki mokuð á kostnað bæjarins. Mokstur vegna öryrkja er við sérstakar aðstæður framkvæmdur samkvæmt beiðni félagsþjónustunnar.
Forgangur snjómoksturs:
Á meðfylgjandi mynd er að finna yfirlit yfir forgang snjómoksturs. Í forgangi 1 eru aðalumferðargötur (merkt blátt) þannig að fært sé að Grindavíkurvegi, skólum, leikskólum, slökkviliðsstöð, heilbrigðisstofnun, niður að höfn, og ákveðinn öryggishring sem nýtist flestum bæjarbúum. Í forgangi 2 eru svo íbúðarhverfi (merkt grænt).
Á kortinu hér að neðan er að finna yfirlit snjómkstur á vegum Grindavíkurbæjar á bílaplönum. Þar eru grunnskólarnir og leikskólarnir í forgangi 1 (merkt rautt) en síðan koma íþróttamannvirki, Víðihlíð og fleiri aðilar í forgangi 2.
Starfsmenn þjónustumiðstöðvar:
Nafn | Staða | Sími | Netfang |
---|---|---|---|
Bergsteinn Ó Ólafsson | Umsjónamaður grænna og opinna svæða | 6607322 | beggi@grindavik.is |
Bogi Adolfsson | Starfsmaður | 6607314 | bogiadolfs@grindavik.is |
Sigurður Rúnar Karlsson | Umsjónamaður áhaldahúss og fasteigna | 6607302 | siggigh@grindavik.is |
Örn Sigurðsson | Starfsmaður | 6607307 | orns@grindavik.is |
Þorlákur Gíslason | Véla- og tækjamaður | 6607323 | torlakur@grindavik.is |