Skólastjóri óskast í nýjan samrekinn leik- og grunnskóla í Grindavík

  • Fréttir
  • 27. febrúar 2026

Við leitum að metnaðarfullum, framsýnum og öflugum leiðtoga til að gegna starfi skólastjóra við nýjan samrekinn leik- og grunnskóla í Grindavík. Um er að ræða einstakt og mikilvægt tækifæri til að leiða uppbyggingu skólastarfs í samfélagi sem hefur staðið frammi fyrir miklum áskorunum vegna náttúruhamfara.

Samrekinn leik- og grunnskóli byggir á traustum faglegum grunni og þeirri öflugu skólamenningu sem hefur einkennt leik- og grunnskólastarf í Grindavík um árabil. Markmiðið er að skapa styðjandi og framsækið námsumhverfi þar sem öryggi, farsæld, nám og þroski barna eru í forgrunni og samfella í námi og þjónustu við börn og fjölskyldur er tryggð.

Er þetta starf fyrir þig? Endilega kynntu þér starfið, hæfni og ábyrgð á umsóknarvef Grindavíkurbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars. 

Nánari upplýsingar veitir Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu og fræðslusviðs. 


Deildu ţessari frétt