Fundur 593

  • Bæjarstjórn
  • 27. febrúar 2026

593. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 26. febrúar 2026 og hófst hann kl. 16:00.

Fundinn sátu: Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður, Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, aðalmaður.

Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Birgitta Hrund, bæjarfulltrúi og Fannar Jónasson, bæjarstjóri sátu fundinn í gegnum Teams.

Dagskrá:

1.      Skólahald í Grindavík - Haust 2026 - 2602070

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta Hrund, Inga Fanney og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Eitt mikilvægasta verkefni Grindavíkurbæjar er að skapa börnum og fjölskyldum stöðugleika, öryggi og fyrirsjáanleika. Brýnasta skrefið í þeirri vinnu er að byggja upp öflugt og traust skólastarf í heimabyggð.

Enn ríkir ákveðin óvissa um framvindu enduruppbyggingar bæjarins. Tímasetning og fyrirkomulag á endursölu eigna í eigu Fasteignafélagsins Þórkötlu, hafa mikil áhrif á ákvarðanir íbúa um búsetu og framtíðarskipan. Framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur mun skila sínum tillögum um endurreisn bæjarins fyrir lok mars.

Næstu sveitarstjórnar bíða margþætt og krefjandi verkefni, en þeir bæjarfulltrúar sem nú sitja hafa lagt áherslu á að skila góðu búi þannig að sveitarfélagið hafi forsendur til að leiða endurreisnina með stuðningi annarra stjórnvalda sem koma að verkefninu með okkur Grindvíkingum. Um það hefur ríkt full samstaða í bæjarstjórn.

Við allar ákvarðanir um endurreisn skólastarfs verður farsæld, velferð og öryggi barna höfð í fyrirrúmi.

Með hliðsjón af framangreindu er lögð fram eftirfarandi tillaga:

Bæjarstjórn samþykkir að hefja skólahald í leikskóla haustið 2026. Jafnframt verði kannað frekar hvort forsendur séu fyrir því að hefja skólahald í yngri bekkjum grunnskóla á næsta skólaári.

Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að auglýsa stöðu skólastjóra við samrekinn leik- og grunnskóla lausa til umsóknar.

Tillagan er samþykkt með 6 atkvæðum, Birgitta Hrund situr hjá.

Bókun

Niðurstöður könnunar um eftirspurn gefa til kynna skráningu 14 nemenda í grunnskóla og 3 barna sem uppfylla skilyrði samkvæmt viðmiðum Grindavíkurbæjar um inntöku í leikskóla fyrir haustið 2026.

Undirrituð telur ógerlegt að meta hvort forsendur séu fyrir hendi til að hefja undirbúning skólastarfs, og vísar til fyrri bókunar sinnar á 592. fundi bæjarstjórnar þann 27. janúar 2026.

Í framhaldi af framangreindu tel ég mikilvægt að sveitarfélagið styðji við starfsemi dagforeldra og kanni möguleika á að útvega eða leigja hentugt húsnæði til slíkrar starfsemi. Með því væri unnt að mæta þörfum barnafjölskyldna með börn á leikskólaaldri með sveigjanlegum og ábyrgum hætti, án þess að ráðast að svo stöddu í umfangsmikinn undirbúning skólastarfs.

Áréttað er að ákvarðanataka bæjarfulltrúa er krefjandi við þær aðstæður sem nú ríkja, þar sem veigamiklar forsendur eru utan beins áhrifasviðs sveitarfélagsins og veruleg óvissa áfram fyrir hendi.

Birgitta H. Ramsay Káradóttir

Fundarhlé tekið kl. 16:25 - 16:40

Bókun 6 bæjarfulltrúa

Þau hóflegu skref sem hér eru lögð til af meirihluta bæjarstjórnar eru vel innan þeirra marka sem ákveðin voru við samþykkt fjárhagsáætlunar 2026. Það er von okkar að með því getum við mætt væntingum Grindvíkinga um þjónustu við fjölskyldur sem vilja flytja heim til Grindavíkur. Jafnframt styður ákvörðun um skólahald við annað framboð þjónustu í bænum, svo sem opnun matvöruverslunar, veitingastaða, tannlæknaþjónustu, auk þeirra fyrirtækja sem hafa starfað frá rýmingu. Við óskum eindregið eftir stuðningi allra sem málið varðar til þess að stíga með þessu móti markviss skref í átt að endurreisn bæjarins.

Meirihluti bæjarstjórnar.

2.      Aðalskipulagsbreyting vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi - 2510007

Til máls tók: Ásrún.

Innviðanefnd tók fyrir og afgreiddi óverulega aðalskipulagsbreytingu vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi. Unnið hefur verið úr umsögnum um skipulagstillöguna varðandi breytta veglínu Norðurljósavegar og tengingu vegarins við Grindavíkurveg, með það að markmiði að bæta umferðaröryggi.

Innviðanefnd gerði ekki athugasemd við tillöguna vísaði henni til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða aðalskipulagstillöguna og að málsmeðferð hennar sé í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.      Orkuvinnsla í Eldvörpum - Umsókn um skipulagsbreytingar - 2601032

Til máls tók: Ásrún.

HS orka leggur fram beiðni til Grindavíkurbæjar um að hefja skipulagsvinnu í tengslum við jarðhitanýtingu í Eldvörpum. Um er að ræða matsskylda framkvæmd samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og krefst aðalskipulagsbreytingar og gerð nýs deiliskipulags.

Beiðni HS orku var tekinn fyrir á 13. fundi innviðanefndar þann 19.1.2025 þar sem skipulagsfulltrúa var falið að koma á framfæri athugasemdum í samræmi við umræður á fundinum en að öðru leyti var skipulagslýsingingin samþykkt af nenfndinni. Skipulagsfulltrúa var falið að leita umsagna um skipulagslýsinguna hjá Skipulagsstofunun og umsagnaraðilum og kynna hana almenningi í samræmi við 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagslýsing verkefnisins hefur verið uppfærð til samræmis við ábendingar skipulagsfulltrúa.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða skipulagslýsinguna og að leitað verði umsagnar um hana hjá Skipulagsstofnun og umsagnaraðilum ásamt því að kynna hana fyrir almenningi í samræmi við 1. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og bókun innviðanefndar frá 19.01.2026.

4.      Fasteignagjöld 2026 - Staðarsund 12, beiðni um niðurfellingu - 2602062

Til máls tóku: Ásrún,

Lögð fram beiðni um undanþágu frá fasteignagjöldum ásamt fylgigögnum. Tillaga Iðnaðarhúsnæðið að Staðarsundi 12 er að hluta afgirt og er það án rafmagns. Jafnframt liggur fyrir að húsnæðið er ekki aðgengilegt til afnota fyrir atvinnustarfsemi án stórfelldra viðgerða.

Telur bæjarstjórn því rétt að fallast á erindi eiganda húsnæðisins um niðurfellingu fasteignagjalda á árinu 2026.

Samþykkt samhljóða.

5.      Skýrsla um stjórnsýsluskoðun hjá Grindavíkurbæ - 2504004

Til máls tók: Ásrún.

Lögð fram lokaskýrsla KPMG til bæjarstjóra um stjórnsýsluskoðun hjá Grindavíkurbæ vegna ársins 2025.

6.      Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga og framboð til stjórnar 2026 - 2602035

Til máls tók: Ásrún.

Lagt fram bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags 12. febrúar 2026 þar sem tilnefningarnefnd Lánasjóðsins auglýsir eftir framboðum til stjórnarsetu.

Fannar Jónasson, bæjarstjóri vék af fundi kl. 16:00

Fundarhlé tekið kl. 16:55 - 17:00

7.      Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga - 2602004

Til máls tók: Ásrún,

Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 23.01.2026 er lögð fram til kynningar.

8.      Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - 2501030

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 50. aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 09.12.2025 er lögð fram til kynningar.

9.      Fundargerðir 2025 - Samtök orkusveitarfélaga - 2509011

Til máls tók: Ásrún

Fundargerð 88. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga, dags. 17. október 2025 er lögð fram til kynningar.

10.      Fundargerðir 2026 - Samtök orkusveitarfélaga - 2602047

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 89. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga, dags. 09. janúar 2026 er lögð fram til kynningar.

11.      Fundargerðir 2026 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - 2601031

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 820. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 11. febrúar 2026 er lögð fram til kynningar.

12.      Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2026 - 2602011

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður og Birgitta Hrund.

Fundargerð 322. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 04.02.2026 er lögð fram til kynningar.

13.      Bæjarráð Grindavíkur - 1701 - 2602001F

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund, Hjálmar og Gunnar Már.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

14.      Bæjarráð Grindavíkur - 1702 - 2602002F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

15.      Bæjarráð Grindavíkur - 1703 - 2602006F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

16.      Almannavarnanefnd Grindavíkur - 81 - 2602005F

Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

17.      Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 94 - 2602007F

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríðaur og Birgitta.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 17:20.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 3. mars 2026

Fundur 1704

Bæjarstjórn / 26. febrúar 2026

Fundur 593

Innviðanefnd / 23. febrúar 2026

Fundur 14

Afgreiðslunefnd byggingamála / 23. febrúar 2026

Fundur 94

Bæjarráð / 18. febrúar 2026

Fundur 1703

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 4. febrúar 2026

Fundur 1701

Bæjarstjórn / 27. janúar 2026

Fundur 592

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. janúar 2026

Fundur 93

Bæjarráð / 20. janúar 2026

Fundur 1700

Innviðanefnd / 19. janúar 2026

Fundur 13

Bæjarráð / 13. janúar 2026

Fundur 1699

Bæjarráð / 6. janúar 2026

Fundur 1698

Bæjarstjórn / 17. desember 2025

Fundur 591

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11