14. fundur innviðanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 23. febrúar 2026 og hófst hann kl. 14:00.
Fundinn sátu: Lilja Ósk Sigmarsdóttir, varaformaður, Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Unnar Á. Magnússon, aðalmaður, Páll Jóhann Pálsson, áheyrnarfulltrúi.
Einnig sátu fundinn: Sigurður A Kristmundsson, hafnarstjóri, Sigurður Rúnar Karlsson, veitustjóri, Guðjón Bragason, Lögfræðingur.
Fundargerð ritaði: Atli Geir Júlíusson
Dagskrá:
1. Einland 129172 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - 2505041
Helena Sandra Antonsdóttir, Særós Stefánsdóttir og Jón Örn Eyjólfsson sátu fundinn undir dagskrárliðnum. Rætt um byggingarleyfisumsókn á Einlandi í Þórkötlustaðarhverfi. Innviðanefnd tók erindið fyrir síðast á fundi þann 8. september 2025.
Farið yfir umsögn MÍ og síðustu vendingar í málinu. Ákveðið að arkitekt umsækjanda ræði við Minjastofnun Íslands um framhaldið. Þá er skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram með umsækjanda.
2. Ósk um að hefja vinnu við breytingu á deiliskipulagi vegna aðkomuleiðar að Efrahóp - 2511029
Málið tekið aftur á dagskrá nefndarinnar vegna ábendinga forgangsréttarhafa við Efrahóp. Innviðanefnd samþykkir að farið verði í breytingu á deiliskipulagi fyrir tillögu 1. Skipulagsfulltrúa falið að hefja ferli við þær deiliskipulagsbreytingar sem þarf skv. tillögu 1 og að grenndarkynna þær fyrir eigendum og forgangsréttarhöfum við Efrahóp og Arnarhlíð þar sem óskað verður eftir athugasemdum og ábendingum. Grenndarkynning verður jafnframt auglýst á heimasíðu sveitarfélagsins.
3. Fráveita Grindavíkurbæjar - aðgerðaáætlun og áfangaskipting - 2506019
Lögð fram til kynningar uppfærð áætlun um fráveituframkvæmdir sem send hefur verið til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins ásamt umsókn um styrk til fráveituframkvæmda. Á árinu 2026 er lögð áhersla á fóðrun á fráveitulögn í vesturstofni.
Innviðanefnd samþykkir áætlunina.
4. Mat á vernd húsa vegna umsókna um niðurrif - 2601037
Fram undan eru örútboð vegna niðurrifs altjónshúsa. Lagður er fram listi um hús sem verða í næstu örútboðum. Óskað er eftir afstöðu innviðanefndar um hvort mat á verndargildi eftirtalinna húsa standi í vegi fyrir niðurrifi.
Innviðanefnd gerir ekki athugasemdir við áform um niðurrif mannvirkja á Austurvegi 18, Austurvegi 20, Staðarsundi 1, Túngötu 25, Víðigerði 24, Víkurbraut 17, Víkurbraut 32, Víkurbraut 36, Víkurbraut 42, Víkurbraut 52 og Vörðusundi 1.
5. Umsókn um framkvæmdaleyfi - Manir iðnaðarsvæði - 2512022
Framkvæmdaleyfisumsókn frá Grindavíkurbæ vegna jarðvegsmana við iðnaðarsvæði við Bakkalág og jarðvegsfrágangs neðan Hlíðarhverfis lögð fram. Framkvæmdirnar eru í samræmi við deiliskipulag.
Innviðanefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og skýringarmynd enda samræmast þessar framkvæmdir gildandi skipulagi. Skipulagsfulltrúa er falið að gefa út framkvæmdaleyfið.
6. Veitur Grindavíkur - Staðan feb 2026 - 2602041
Minnisblað um ástand veitna í eigu Grindavíkurbæjar var lagt fram og fór veitustjóri yfir helstu atriði þess. Innviðanefnd lýsir mikilli ánægju með það góða starf sem hefur verið unnið við krefjandi aðstæður eftir rýmingu bæjarins 10. nóvember 2023. Ástand veitna er heilt yfir gott þótt enn þurfi að fara fram viðgerðir á tilteknum svæðum í tengslum við sprunguviðgerðir í bænum.
7. Viðbrögð vegna sjávarflóða útgáfa 1,0 2026 - 2602037
Viðbragðsáætlun Grindavíkurhafnar vegna sjávarflóða fyrir árið 2026 lögðu fram til kynningar og umræðu. Hafnarstjóri kynnti viðbragðsáætlun og svaraði spurningum nefndarmanna.
Innviðanefnd samþykkir viðbragðsáætlunina.
8. Aðalskipulagsbreyting vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi - 2510007
Unnið hefur verið úr umsögnum um óverulega breytingu á aðalskipulagi Grindavíkurbæjar varðandi breytta veglínu Norðurljósavegar og tengingu vegarins við Grindavíkurveg, með það að markmiði að bæta umferðaröryggi. Tillagan hefur verið uppfærð með tilliti til ábendinga í umsögnum.
Innviðanefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og telur hana vera tilbúna til staðfestingar bæjarstjórnar. Þá samþykkti innviðanefnd að farið verði með skipulagstillöguna í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Erindinu er vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarstjórnar.
9. Umsókn um skipulagsbreytingu - deiliskipulag Svartsengi Northern Light -Inn - 2511011
Grenndarkynningartíma skipulagsbreytingar við hótelið Northern Light Inn lauk 4. febrúar 2026 án athugasemda. Umsagnir bárust frá Bláa Lóninu og Landeigendafélagi Járngerðastaða og Hópstorfu. Uppfærð gögn lögð fram eftir athugasemdir skipulagsfulltrúa Grindavíkubæjar.
Innviðanefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna. Í samræmi við 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og viðauka 1.1 við bæjarmálasamþykkt Grindavíkurbæjar er um fullnaðarafgreiðslu að ræða. Skipulagsfulltrúa er falið að afgreiða deiliskipulagstillöguna í samræmi við skipulagslög.
10. Reykjanesvirkjun: Meðferð og förgun útfellinga með aukna náttúrulega geislavirkni - 2602058
Umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna Reykjanesvirkjunar lögð fram til kynningar ásamt gögnum. Umsagnarfrestur er til 1. apríl 2026 og gert ráð fyrir að umsögn sveitarfélagsins liggi fyrir á næsta fundi innviðanefndar. Málið er nr. 207/2026 í skipulagsgátt. Skipulagsfulltrúa og lögfræðingi bæjarins falið að vinna málið áfram.
11. Dreifing búfjárábúrðar til uppgræðslu á svæði milli varnargarða - 2601024
Málið tekið fyrir að nýju eftir viðbrögð frá Brimfaxa í kjölfar síðasta fundar innviðanefndar.
Innviðasvið Grindavíkurbæjar hefur óskað eftir umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja (HES). Innviðanefnd frestar málinu þar til umsögn HES liggur fyrir.
12. Borholur í Krýsuvík - Umsagnarbeiðni vegna auglýsingar á skipulagsbreytingum - 2601023
Umsögn Grindavíkurbæjar lögð fram til kynningar.
13. Atvinnustefna Suðurnesja 2026-2030 - 2602055
Atvinnustefna Suðurnesja 2026-2030 lögð fram. Erindinu vísað til bæjarráðs sem fer með atvinnumál hjá sveitarfélaginu.
14. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 94 - 2602007F
Fundargerð afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála nr. 94 lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 16:00.