Niđurstöđur könnunar um viđhorf Grindvíkinga

  • Fréttir
  • 12. febrúar 2026

Grindavíkurnefnd hefur birt niðurstöður könnunar sem Maskína framkvæmdi meðal Grindvíkinga á tímabilinu 4. desember 2025 til 25. janúar 2026.

Alls tóku 1.470 einstaklingar þátt, eða um 54% bæjarbúa 18 ára og eldri. Auk þess veittu foreldrar upplýsingar um 1.171 barn.

Könnunin varpar ljósi á hagi, líðan og framtíðaráform Grindvíkinga rúmum tveimur árum eftir rýmingu bæjarins í nóvember 2023. Niðurstöður könnunarinnar má sjá á vef Grindavíkurnefndar.


Deildu ţessari frétt