Nú liggur fyrir álagning fasteignagjalda í Grindavíkurbæ fyrir árið 2026. Vegna þeirra aðstæðna sem ríkja hefur bæjarstjórn ákveðið að koma til móts við eigendur íbúarhúsnæðis og lækka álagningarprósentu fasteignaskatts úr 0,3% í 0,25%.
Hér að neðan má finna hagnýtar upplýsingar um hvernig nálgast má álagningarseðla, hvað felst í gjöldunum og hverjir eiga rétt á afslætti.
Hvar finn ég seðilinn?
Álagningarseðlar eru eingöngu birtir rafrænt. Hægt er að nálgast þá á vefnum island.is undir „Mínar síður“ (innskráning með rafrænum skilríkjum). Kröfur vegna gjaldanna birtast svo sjálfkrafa í heimabanka greiðanda.
Gjalddagar og fyrirkomulag
Gjöldunum er dreift á 10 gjalddaga yfir árið til að jafna greiðslubyrði. Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar og sá síðasti 1. nóvember. Athugið: Ef heildarupphæð gjalda er 25.000 kr. eða lægri, innheimtist hún öll á fyrsta gjalddaga.
Hvað er ég að greiða?
Fasteignaskattur er lagður á samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4 frá 1995 með síðari breytingum, sbr. 3. gr. laganna. Fasteignagjöld eru samsett úr nokkrum liðum sem standa straum af þjónustu og rekstri sveitarfélagsins:
Álagningarstuðlar fasteignaskatts og annarra fasteignagjalda eru ákveðnir árlega af bæjarstjórn og eru þessir fyrir árið 2026:
Athugið að lóðaleiga er eingöngu reiknuð af fasteignamati lóðar.
Afsláttur til eldri borgara og örorkulífeyrisþega
Grindavíkurbær býður upp á tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjaldi til þeirra sem eru 67 ára og eldri eða eru öryrkjar (75% örorka eða meira) með vísan í reglur um afslátt á fasteignagjöldum tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega. Afslátturinn er reiknaður út frá tekjum ársins 2025 og getur verið 25%, 50%, 75% eða 100%. Skila þarf inn staðfestu skattframtali á álagningarári vegna tekna og eigna fyrra árs, þ.e. skattframtali 2026.
Tekjuviðmið fyrir 2026:
Sækja þarf um afsláttinn árlega og er það gert með því að skila staðfestu skattframtali í afgreiðslu þjónustuvers Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62 eða gegnum tölvupóst á netfangið grindavik@grindavik.is.
Þess ber að geta að fasteignamat í Grindavík hefur ekki hækkað frá því sem það var 31. desember 2023.
Ef spurningar vakna hvetjum við íbúa til að hafa samband við þjónustuver Grindavíkurbæjar í síma 420-1100 eða senda fyrirspurn á netfangið grindavik@grindavik.is.