Fundur 1701

  • Bæjarráð
  • 4. febrúar 2026

1701. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 3. febrúar 2026 og hófst hann kl. 14:00.

Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Birgitta H. Ramsay Káradóttir, varamaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi.

Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. Birgitta Hrund, Inga Fanney og Guðjón sátu fundinn í Teams.

Dagskrá:

1.      Spurningar frá menntasviði og velferðarsviði Reykjanesbæjar - 2601039

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Lögð fram drög að svörum við spurningum frá mennta- og velferðarsviði Reykjanesbæjar.

Bæjarráð samþykkir framlögð svör og felur sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs að koma þeim á framfæri við Reykjanesbæ.

2.      Samstarfshópur vegna Reykjanesfólkvangs - 2601055

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Náttúruverndarstofnun vinnur að undirbúningi að endurskoðun friðlýsingar fyrir Reykjanesfólkvang. Við endurskoðun friðlýsingar fyrir fólkvanginn verður lagt upp með að stofna þrjá sjálfstæða samstarfshópa fyrir hvert svæði sem vinna að því að skipta upp fólkvanginum í samræmi við sveitarfélagsmörk og endurnýja friðlýsingarskilmála fyrir hvert svæði.

Náttúruverndarstofnun óskar eftir fulltrúa frá Grindavíkurbæ í samstarfshópa sem vinna að umgjörð friðlýsingarinnar með fulltrúum stofnunarinnar til dæmis að afmörkun og vinnslu friðlýsingarskilmála.

Bæjarráð tilnefnir Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs, í starfshópinn vegna lögsögu Grindavíkur.

3.      Upplýsingar um dvöl barna í Grindavík - 2512050

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Lagt fram svarbréf til Grindavikurnefndar vegna erindis sem lagt var fram á 1688. fundi bæjarráðs Grindavíkur.

4.      Endurkaupaáætlun Þórkötlu - 2602001

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Lagt fram bréf frá stjórn Járngerðar, dags. 30. janúar 2025, varðandi endurkaupaáætlun Þórkötlu og endurreisn Grindavíkur.

5.      Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga - 2601060

Lagt fram bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, dags. 27. janúar sl. vegna frumvarps um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:30.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 4. febrúar 2026

Fundur 1701

Bæjarstjórn / 27. janúar 2026

Fundur 592

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. janúar 2026

Fundur 93

Bæjarráð / 20. janúar 2026

Fundur 1700

Innviðanefnd / 19. janúar 2026

Fundur 13

Bæjarráð / 13. janúar 2026

Fundur 1699

Bæjarráð / 6. janúar 2026

Fundur 1698

Bæjarstjórn / 17. desember 2025

Fundur 591

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bæjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bæjarráð / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviðanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviðanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bæjarráð / 9. september 2025

Fundur 1689