Fundur 592

  • Bæjarstjórn
  • 30. janúar 2026

592. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 27. janúar 2026 og hófst hann kl. 14:00.

Fundinn sátu: Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður, Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, aðalmaður.

Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Birgitta Hrund, Birgitta Rán og Guðjón sátu fundinn í gegnum Teams.

Dagskrá:

1.      Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2507023

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Fjalar Sigurðarson, ráðgjafi.

Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Fjalar, Hallfríður, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, bæjarstjóri, Hjálmar, Gunnar Már, Inga Fanney, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Guðjón, Birgitta Hrund og Birgitta Rán.

Fjárhagsáætlun Grindavíkur og stofnana 2026-2029 er lögð fram til síðari umræðu. Bókun

Áætlunin ber það með sér að starfsemi Grindavíkurbæjar muni aukast í skrefum yfir áætlunartímabilið. Gert er ráð fyrir fjölgun íbúa og er gert ráð fyrir að íbúafjöldi verði 2.321 í lok árs 2029.

Áætlun um tekjur af útsvari byggir á aukningu íbúa. Fasteignagjöld verða lögð á árið 2026 en síðustu 2 ár hafa fasteignagjöld ekki verið lögð á eignir innan þéttbýlis.

Gert er ráð fyrir að rekstarkostnaður aukist með aukinni starfsemi. Á áætlunartímabilinu mun ekki nást jafnvægi milli tekna og gjalda og gert er ráð fyrir rekstarhalli öll árin.

Áætluð rekstrarniðurstaða í samanteknum reikningsskilum A- og B-hluta í þúsundum króna:

2026                 2027            2028            2029

303.042      605.106      497.323      241.974

Verulega gengur á handbært fé Grindvíkurbæjar, bæði handbært fé til rekstar og tjónabætur frá NTÍ. Handbært fé í upphafi árs 2026, án samstarfsverkefna, er 4.754.722 þús. króna. Þar af er bótasjóður 2.936.179 þús. króna. Í árslok 2029 er gert ráð fyrir að handbært fé verði 866.191 þús. króna og bótasjóður tæmdur.

Tillaga

Lagt er til að bæta inn í áætlunina, á lið 06801-9904, kr. 6.300.000 vegna leigu, 2.000.000 kr. vegna Þorrablóts og allt að 600.000 kr. í auglýsingaskilti vegna bikarúrslita KKÍ.

Tillagan er samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn samþykkir áætluna með 6 atkvæðum, Birgitta Hrund situr hjá.

Bókun bæjarfulltrúa Undirrituð situr hjá við atkvæðagreiðslu um fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar og óskar eftir að það verði bókað sérstaklega í fundargerð.

Ég vil í upphafi þakka starfsfólki Grindavíkurbæjar fyrir vandaða og góða vinnu; í áætluninni eru fjölmörg mikilvæg og jákvæð atriði sem endurspegla vilja til uppbyggingar og framtíðarsýnar fyrir bæjarfélagið.

Ástæða þess að ég sit hjá er sú að mér hugnast ekki þau áform sem fram koma í fjárhagsáætlun um að hefja skólahald innan Grindavíkur haustið 2026, miðað við þá óvissu sem nú ríkir. Þrátt fyrir að ég skilji og virði sjónarmið þeirra sem vilja taka skref í átt að uppbyggingu bæjarfélagsins, tel ég ekki rétt að stíga þetta skref á næsta skólaári.

Á þessum tímapunkti er enn mikil óvissa um öryggi, og fyrirliggjandi áhættumat bendir til þess að ekki sé ábyrgt að hefja skólastarf við núverandi aðstæður. Jafnframt liggur ekki fyrir hversu mörg börn muni búa í Grindavík, hvort það sé fjárhagslega ábyrgt að standa undir skólahaldi með tilheyrandi kostnaði, faglegri skipulagningu og starfsmannahaldi.

Ekki er hægt að gera raunhæfar áætlanir um íbúaþróun þar sem skortir upplýsingar um vilja og áform fólks til að flytjast aftur til bæjarins.

Þá er einnig óljóst hvernig og hvenær endurkaup íbúðarhúsnæðis í eigu Þórkötlu fasteignafélags mun fara fram og hvenær húsnæði í þeirra eigu verður raunhæfur búsetukostur.

Að síðustu ríkir áfram veruleg óvissa um þróun náttúruváa á Reykjanesskaga, þar á meðal með tilliti til kvikusöfnunar, sprunguhreyfinga og mögulegra eldsumbrota. Ég tel mikilvægt að lögbundinni skyldu sveitarfélagsins um skólahald verði fullnægt með öðrum leiðum að svo stöddu, til dæmis með því að tryggja börnum sem mögulega verða búsett í Grindavík skólavist í öðrum sveitarfélögum, þar til forsendur fyrir skólahaldi innan bæjarins eru skýrari og öruggari.

Þá vil ég taka fram að ég styð heilshugar uppbyggingu Grindavíkur til framtíðar, en tel að of mörgum grundvallarspurningum sé ósvarað á þessu stigi til að ég geti, með góðri samvisku, samþykkt fjárhagsáætlunina í heild sinni.

Í lokin er ítrekað að full virðing er borin fyrir ólíkum sjónarmiðum bæjarfulltrúa og annarra sem hafa tekið þátt í umræðu um uppbyggingu sveitarfélagsins, enda byggist farsæl og örugg endurreisn Grindavíkur á virku samtali og góðri samvinnu allra.

Birgitta H. Ramsay Káradóttir

2.      Spurningar frá menntasviði og velferðarsviði Reykjanesbæjar - 2601039

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Fjalar Sigurðarson, ráðgjafi.

Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Hallfríður, Gunnar Már, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Birgitta Hrund.

Lögð fram erindi frá menntasviði og velferðarsviði Reykjanesbæjar.

Sviðsstsjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að vinna málið áfram.

3.      Salthúsið Stamphólsvegi 2 - framtíðarhorfur - 2601033

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og Fjalar Sigurðarson, ráðgjafi.

Til máls tóku: Ásrún, Hjálmar, bæjarstjóri, Hallfríður, Hjálmar og Gunnar Már, Kynning á gangi mála við ákvörðun á því hvort halda skuli Salthúsinu eða ekki. Innviðanefnd telur rétt að húsið fái að standa þangað til annað verður ákveðið.

Bæjarstjórn samþykkir að húsið standi áfram og felur bæjarstjóra að ganga til samninga við húseiganda.

4.      Mat á vernd húsa vegna umsókna um niðurrif - 2601037

Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.

Samkvæmt ákvörðun bæjarins um að leggja skuli fyrir þær eignir sem óskað er eftir að rífa eru hér lagðar fram byggingarleyfisumsóknir fyrir niðurrifi fyrir mannvirkin á lóðum Mánagötu 19, Mánagötu 21 og Mánagerði 2. Innviðanefnd gerir ekki athugasemdir við áform um niðurrif mannvirkja á Mánagötu 19, Mánagötu 21 og Mánagerði 2.

Bæjarstjórn samþykkir byggingaleyfisumsóknirnar samhljóða.

5.      Þjónustugjaldskrá Grindavíkurhafnar 2026 - 2601036

Til máls tók: Ásrún.

Innviðanefnd samþykkti tillögu um gjaldskrá hafnarinnar fyrir árið 2026 á 13. fundi nefdarinnar 19. janúar sl. og vísaði henni til bæjarstjórnar til staðfestingar.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrána samhljóða.

6.      Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga - 2502014

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 991. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 12.12.2025 er lögð fram til kynningar.

7.      Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð - 2501029

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 575. stjórnarfundar Kölku dags. 09.12.2025 er lögð fram til kynningar.

8.      Fundargerðir 2026 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - 2601031

Til máls tóku: Ásrún og Guðjón.

Fundargerð frá 819. fundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 14. janúar 2026 er lögð fram til kynningar.

9.      Fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs 2025 - 2601044

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 91. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs dags. 17.11.2025 er lögð fram til kynningar.

10.      Fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs 2026 - 2601051

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 92. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs dags. 19.01.2026 er lögð fram til kynningar.

11.      Fundargerðir 2025 - Þekkingarsetur Suðurnesja - 2502041

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 58. fundar stjórnar Þekkingarseturs Suðurnesja frá 04.12.2025 er lögð fram til kynningar.

12.      Almannavarnanefnd Grindavíkur - 80 - 2601006F

Til máls tóku: Ásrún, Hjálmar, Hallfríður og bæjarstjóri.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

13.      Innviðanefnd - 13 - 2601008F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

14.      Bæjarráð Grindavíkur - 1698 - 2601001F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

15.      Bæjarráð Grindavíkur - 1699 - 2601005F

Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

16.      Bæjarráð Grindavíkur - 1700 - 2601009F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:55.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 4. febrúar 2026

Fundur 1701

Bæjarstjórn / 27. janúar 2026

Fundur 592

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. janúar 2026

Fundur 93

Bæjarráð / 20. janúar 2026

Fundur 1700

Innviðanefnd / 19. janúar 2026

Fundur 13

Bæjarráð / 13. janúar 2026

Fundur 1699

Bæjarráð / 6. janúar 2026

Fundur 1698

Bæjarstjórn / 17. desember 2025

Fundur 591

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bæjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bæjarráð / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviðanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviðanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bæjarráð / 9. september 2025

Fundur 1689