Fjárhagsáćtlun Grindavíkur fyrir áriđ 2026 samţykkt

  • Fréttir
  • 29. janúar 2026

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur samþykkt fjárhagsáætlun fyrir árið 2026. Áhersla er lögð á að tryggja rekstrarhæfi sveitarfélagsins, viðhalda nauðsynlegu öryggi og að áform um endurreisn bæjarins verði á forsendum Grindvíkinga. Áætlunin gerir ráð fyrir að rekstur bæjarins sé tryggður þrátt fyrir krefjandi aðstæður, en ljóst er að forsendur um tekjur og íbúaþróun eru enn háðar óvissu.

Ný bæjarstjórn tekur við völdum eftir kosningar í vor og mun Grindavíkurnefndin þá ljúka störfum og þau verkefni sem Grindavíkurbær fól nefndinni færast aftur til sveitarfélagins. Verðandi bæjarstjórnar bíða brýn verkefni um endurreisn og uppbyggingu og núverandi bæjarstjórn vill ekki binda hendur þeirra sem taka við.

Möguleiki á leik- og grunnskólastarfi í haust

Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir þeim möguleika að leik- og grunnskólastarf geti hafist, en sú forsenda er háð skilyrðum um öryggi og eftirspurn. Bæjaryfirvöld bjóða upp á forskráningu í leik- og grunnskóla í gegnum íbúagátt.

Markmiðið með forskráningunni er eingöngu að kanna raunverulega eftirspurn og hvort raunhæft sé að halda úti skólastarfi í bænum næsta haust. Skráningin er hvorki bindandi fyrir foreldra né bæjaryfirvöld. Ákvörðun um að hefja skólahald verður ekki tekin nema næg þátttaka fáist til að halda úti faglegu skólastarfi í öruggu umhverfi.

Álögur lækkaðar til stuðnings fasteignaeigendum

Þrátt fyrir mikla óvissu vill bærinn koma til móts við fasteignaeigendur. Fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði lækkar úr 0,3% í 0,25% á árinu 2026. Með þessu vill sveitarfélagið létta byrðar þeirra sem eiga eignir í bænum, óháð því hvort þeir dvelja þar eða ekki. Það skal tekið fram að Fasteignafélagið Þórkatla er undanþegið fasteignagjöldum skv. lögum um félagið.

Öryggið er forgangsmál

Endurreisn bæjarins byggir á ströngum öryggiskröfum. Gert er ráð fyrir að slökkvilið Grindavíkur verði mannað allan sólarhringinn og sinni auknum verkefnum tengdum náttúruvá og öryggisgæslu. Unnið er markvisst að viðgerðum á innviðum, fjármagnað með bótasjóði, þar sem forgangsraðað er í þágu öryggis og nauðsynlegrar þjónustu fyrir stækkandi samfélag. Þetta samræmist kröfum um að öryggismál séu í föstum skorðum og verði unnin í nánu samstarfi við viðbragðsaðila.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 29. janúar 2026

Tjónamati í Grindavík ađ mestu lokiđ

Fréttir / 22. janúar 2026

Dale Carnegie fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 6. janúar 2026

Miđvikudagskaffi í Kvikunni

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 16. desember 2025

Mánudagskaffiđ verđur nćst 12. janúar