Lítil og međalstór fyrirtćki - Fundur um endurreisn Grindavíkur

  • Fréttir
  • 28. janúar 2026

Grindavíkurnefnd vinnur nú að að rammaáætlun um endurreisn Grindavíkur. Forsætisráðherra fól nefndinni það verkefni nýlega og skal því lokið fyrir páska. Slík rammaáætlun markar hvernig staðið verður að málum við uppbyggingu og endurreisn til skemmri og lengri tíma.

Mikilvægt er að eiga víðtækt samráð og samstarf um gerð rammaáætlunar um endurreisn í Grindavík. Nú á fyrstu vikum ársins er nefndin í samtali við aðila sem koma eða hafa komið að málefnum Grindavíkur og mikilvægt er að leita ráða hjá um hvernig endurreisn í Grindavík verður haldið áfram.

Grindavíkurnefnd boðar til fundar með litlum og meðalstórum fyrirtækjum í Grindavík til að fá fram sjónarmið þeirra um endurreisn bæjarins. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 2. febrúar kl. 16 í Gjánni í Grindavík. Ekki verður hægt að taka þátt í fundinum í streymi. Þeir sem komast ekki til fundar en óska eftir að koma sjónarmiðum á framfæri geta haft samband við nefndarmenn.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 29. janúar 2026

Tjónamati í Grindavík ađ mestu lokiđ

Fréttir / 22. janúar 2026

Dale Carnegie fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 6. janúar 2026

Miđvikudagskaffi í Kvikunni

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 16. desember 2025

Mánudagskaffiđ verđur nćst 12. janúar