93. fundur Afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála haldinn á skrifstofu byggingafulltrúa, mánudaginn 26. janúar 2026 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu: Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi, Guðjón Bragason, lögfræðingur.
Fundargerð ritaði: Bjarni Rúnar Einarsson, Byggingarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Mánagerði 2 - Umsókn um byggingarleyfi - Niðurrif - 2512044
Fyrir hönd Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf. sækir Sigurður Rúnar Karlsson um byggingarleyfi fyrir niðurrifi á Mánagerði 2.
Umsókn um byggingaráform um niðurrif að Mánagerði 2 er samþykkt.
Fara þarf í öllu eftir ákvæðum um niðurrif úr lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
2. Mánagata 19 - Umsókn um byggingarleyfi - Niðurrif - 2512045
Fyrir hönd Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf. sækir Sigurður Rúnar Karlsson um byggingarleyfi fyrir niðurrifi á Mánagötu 19.
Umsókn um byggingaráform um niðurrif að Mánagötu 19 er samþykkt.
Fara þarf í öllu eftir ákvæðum um niðurrif úr lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
3. Mánagata 21 - Umsókn um byggingarleyfi - Niðurrif - 2512046
Fyrir hönd Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf. sækir Sigurður Rúnar Karlsson um byggingarleyfi fyrir niðurrifi á Mánagötu 21.
Umsókn um byggingaráform um niðurrif að Mánagötu 21 er samþykkt.
Fara þarf í öllu eftir ákvæðum um niðurrif úr lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
4. Umsókn um uppfærslu á skráningu - Austurvegur 3B - 2601016
Sigurður Rúnar Karlsson sækir um fyrir hönd Grindavíkurbæjar uppfærslu á skráningu á stúku við knattspyrnuvöll samkvæmt teikningum frá TSÁ dags. 6. nóvember 2025.
Erindið er samþykkt. Byggingarfulltrúi mun senda tilkynningu um skráningu til HMS.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 17.23.