Dale Carnegie námskeiđ fyrir fullorđna

  • Fréttir
  • 23. janúar 2026

Rauði krossinn í samstarfi við Grindavíkurbæ með styrk frá Ríó Tinto býður Grindvíkingum á námskeið hjá Dale Carnegie. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Sjá auglýsingu um námskeið fyrir ungt fólk.

Dale Carnegie námskeiðið er elsta námskeið sinnar tegundar og hefur verið yfir 100 ár í þróun og þykir eitt áhrifamesta úrræði í heimi sem tengist sjálfshjálp. Markmiðin eru að styrkja þátttakendur í samskiptum, styrkja sambönd, auka leiðtogafærni, markmiðasetningu og framtíðarsýn. Einnig að vinna með tjáningu og aðferðir til að minnka kvíða og streitu.

  • Dale Carnegie kvöldnámskeiðið, hefst 29. janúar 2026
  • Dale Carnegie helgarnámskeið, hefst 20. febrúar 2026
  • Dale Carnegie live online námskeið, hefst 2. mars 2026
  • Dale Carnegie kvöldnámskeiðið, hefst 11. mars 2026
  • Dale Carnegie helgarnámskeið, hefst 17. apríl 2026

Skráning er á dale.is og upplýsingar í síma 864 5116 alla daga vikunar. Með því að setja inn afsláttarkóðann Grindavík2026 virkjast 100% afsláttur.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 29. janúar 2026

Tjónamati í Grindavík ađ mestu lokiđ

Fréttir / 22. janúar 2026

Dale Carnegie fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 6. janúar 2026

Miđvikudagskaffi í Kvikunni

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 16. desember 2025

Mánudagskaffiđ verđur nćst 12. janúar