Við áramót gefst gott tækifæri til að staldra við, horfa yfir farinn veg og líta fram á við. Árið 2025 markar tímamót í endurreisn Grindavíkur. Verkefni hafa farið af stað á mörgum sviðum bæjarins samtímis og skýr merki eru um meira líf, uppbyggingu og trú á framtíðina.
Uppbygging Grindavíkur er unnin í nánu samstarfi sveitarfélagsins, ríkisins og annarra lykilaðila með það að markmiði að ákvarðanir séu teknar á faglegum grunni með fyrirsjáanleika í huga. Samstaða hefur verið lykilforsendan í þessari vinnu og þar sem unnið hefur verið að fjölmörgum verkefnum samhliða með sameiginlegt markmið að leiðarljósi, þ.e. að endurreisa Grindavík.
Undirbúningsvinna er hafin vegna móttöku fleiri og yngri íbúa næsta sumar og haust, meðal annars varðandi skólamál og frístundir.
Viðgerðir á Grunnskólanum við Ásabraut eru langt komnar. Þar hefur verið unnið að þremur verkefnum sem eru forsenda þess að hægt verði að hefja skólastarf í húsnæðinu á næsta skólaári. Það er von bæjarstjórnar að þá fylli starfsfólk, nemendur og foreldrar húsnæðið lífi.
Viðgerðir á viðbyggingunni við Hópsskóla eru að hefjast en þær munu taka lengri tíma og verða unnar í áföngum.
Jafnframt er horft til þess að starfræktur verði leikskóli í Grindavík samhliða því að fleiri fjölskyldur flytji í bæinn. Með fjölgun íbúa mun þjónusta við yngstu íbúana aukast.
Allar okkar áætlanir miða að því að Grindavík verði áfram lifandi samfélag þar sem börn, ungmenni og fjölskyldur hafi tækifæri til að vaxa og dafna í öruggu umhverfi.
Í samstarfi við Vegagerðina hefur verið unnið að útfærslu aðalskipulagsbreytingar við Svartsengi með það að markmiði að bæta umferðaröryggi á Norðurljósavegi og við gatnamót Grindavíkurvegar og Norðurljósavegar. Einnig hefur verið unnið að ýmsum minniháttar en mikilvægum breytingum í skipulagsmálum innan Grindavíkur, meðal annars að heimildum til landmótunar á völdum stöðum innan bæjarmarkanna og landfyllingar við höfnina.
Framkvæmdir við fráveitudælustöð við Seljabót eru hluti af áfangaskiptri áætlun. Um er að ræða mikilvægt umhverfismál sem og öryggismál vegna flóða á hafnarsvæðinu. Skólp fer nú út fyrir sjóvarnargarða.
Vatnsmóttökustöðin Klifhólabrunnur var tekin í notkun í haust og tryggir vatnsöryggi Grindavíkur til framtíðar eftir að eldri stöð, Melhólsbrunnur, fór undir hraun í janúar 2024.
Snemma á næsta ári mun sveitarfélagið endurnýja heimasíðu sína. Um er að ræða stórt verkefni sem mun hafa jákvæð áhrif á upplýsingagjöf til íbúa sem og ásýnd sveitarfélagsins. Jafnframt er unnið að opnun ljósmyndavefs sem mun áfram tengja samfélagið okkar saman, sama hvar fólk er statt í heiminum.
Unnið er að fleiri samfélagslegum verkefnum. Áfram verður stutt við viðburðahald í Grindavík. UMFG mun áfram leika heimaleiki sína í Grindavík, Grindvíkingar og gestir okkar munu sækja sjómannadaginn í Grindavík og svo mætti lengi telja.
Þá er unnið að fjármögnun verkefna sem munu hafa jákvæð áhrif á bæjarlífið og draga til okkar ferðamenn. Sem dæmi má nefna Végarð við íþróttamannvirkin auk betra aðgengis ferðamanna að öðrum stöðum innanbæjar. Samhliða er unnið að betri sýnileika Grindavíkur á vef og samfélagsmiðlum gagnvart erlendum ferðamönnum. .
Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá merki um grósku í atvinnulífi Grindavíkur. Ný fyrirtæki hafa hafið starfsemi í bænum, þar á meðal Viknordik, sem sérhæfir sig í plastsuðu og þjónustu við fiskeldisfyrirtæki.
Neskja handverkskonfekt opnaði nýverið verslun þar sem konfekt er framleitt frá grunni og hafa Grindvíkingar tekið vel á móti þeim. Bæði þessi fyrirtæki eru staðsett við Hafnargötu og við tökum þeim fagnandi og óskum þeim velfarnaðar.
Á sama tíma standa fyrirtæki sem lengi hafa starfað í Grindavík í miklum fjárfestingum, meðal annars HS Orka sem hefur fjárfest í Svartsengi fyrir um 14 milljarða króna á síðustu árum og Bláa Lónið mun á næstu árum bæta aðstöðu og upplifun gesta enn frekar með miklum framkvæmdum.
Þá kom Guðbjörg GK 9, nýjasta skip Stakkavíkur nýverið í fyrsta sinn til heimahafnar og bættist við glæsilegan skipaflota Grindavíkur. Loks má nefna að Ganti áformar að opna saltfiskvinnslu í Grindavík á nýju ári og eru þá aðeins örfá dæmi nefnd.
Það skiptir okkur öll máli að halda áfram á þessari leið uppbyggingar á árinu 2026 og skapa þannig traustar forsendur fyrir búsetu, atvinnulífi og samfélaginu í Grindavík.
Að lokum vill bæjarstjórn Grindavíkurbæjar færa starfsfólki sveitarfélagsins einlægar þakkir fyrir ómetanlegt framlag á árinu.
Á árinu 2025 hafa fjölmörg verkefni verið unnin þvert á svið sveitarfélagsins, sem endurspeglar getuna til samvinnu, fagmennsku og ábyrgðar. Þessi verkefni eru ekki alltaf sýnileg almenningi en eru ein forsenda búsetu í Grindavík.
Bæjarstjórn vill jafnframt senda Grindvíkingum nær og fjær hlýjar jólakveðjur og þakkir fyrir þrautseigju, samstöðu og trú á framtíð samfélagsins okkar.
Megi nýtt ár færa ykkur góða heilsu og hamingju!