590. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 25. nóvember 2025 og hófst hann kl. 14:00.
Fundinn sátu: Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður, Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, aðalmaður.
Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur. Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs. Birgitta Rán sat fundinn í Teams.
Dagskrá:
1. Aðgerðaáætlun, framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavík, vegna fræðslumála og samþættrar þjónustu við börn skólaárið 2025-2026 - 2508023
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar og sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Gunnar Már, bæjarstjóri, Birgitta Hrund, Inga Fanney, Hjálmar og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Aðgerðaáætlun vegna fræðslumála og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna, auk bréfs dags. 14. nóvember sl varðandi samþykktar ráðherra á aðgerðaáætluninni eru lögð fram.
2. Varavatnsból í Vatnsheiði - 2509017
Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Til máls tóku: Ásrún og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Lagðar fram niðurstöður verðkönnunar í borun í Vatnsheiði.
Lagt er til að samþykkja tilboð frá Vatnsborun ehf. að fjárhæð 26.511.626 kr. en tilboðs fjárhæð lækkaði eftir yfirferð Eflu úr 27.819.542 kr.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að taka tilboði lægstbjóðanda að fjárhæð 26.511.626 kr.
3. Skil á lóð - Melhólabraut 4, Orf Líftækni - 2511007
Til máls tók: Ásrún.
Bæjarráð samþykkti framkomna beiðni um aflýsingu á lóðarleigusamningi og þar með skil á lóð og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir beiðnina.
4. Skil á lóð - Staðarsund 3 - 2506008
Til máls tók: Ásrún. Bæjarráð samþykkti framkomna beiðni um aflýsingu á lóðarleigusamningi og þar með skil á lóð og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir beiðnina.
5. Víkurbraut 58 - Leyfisveitingar - 2506031
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.
Lagt fram erindi frá sýslumannsembættinu á Suðurnesjum vegna umsagnarbeiðni um leyfi til reksturs gististaðar í flokki IV ? A Hótel. Umsækjandi er Nýja búðin ehf., kt. 690925-0600 vegna Geo Hótels að Víkurbraut 58 í Grindavík.
Bæjarstjórn Grindavíkur gerir ekki athugasemd við að veitt verði leyfi til reksturs gististaðar í flokki IV - A Hótel að Víkurbraut 58, í samræmi við umsókn.
6. Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - Kvikan - 2511038
Til máls tók: Ásrún. Kokksi ehf. sækir um tímabundið áfengisleyfi vegna dansleiks í Kvikunni 28. nóvember nk.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða veitingu leyfisins.
7. Gjaldskrá slökkviliðs Grindavíkur - 2511016
Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri. Lögð fram uppfærð gjaldskrá Slökkviliðs Grindavíkur.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrána.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrána samhljóða.
8. Ákörðun um útsvarshlutfall á árinu 2026 - 2511042
Til máls tóku: Ásrún, Birgitta Hrund, Hallfríður og Hjálmar.
Lagt er til að útsvarshlutfall fyrir árið 2026 verði 14,97% sem er lögbundið hámark.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.
9. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga - 2502014
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 988. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 31.10.2025 er lögð fram til kynningar.
10. Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - 2501030
Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, Hjálmar, Gunnar Már og Hallfríður.
Fundargerð 29. aðalfundar SSS frá 4.10.2025 er lögð fram til kynningar
11. Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - 2501030
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 817. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 10. nóvember 2025 er lögð fram til kynningar.
12. Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð - 2501029
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 572. fundar Kölku dags. 09.09.2025 er lögð fram til kynningar.
13. Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð - 2501029
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerð 573. stjórnarfundar Kölku dags. 14.10.2025 er lögð fram til kynningar.
14. Bæjarráð Grindavíkur - 1694 - 2511004F
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
15. Bæjarráð Grindavíkur - 1695 - 2511006F
Til máls tóku: Ásrún og Gunnar Már, bæjarstjóri, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Birgitta Hrund.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
16. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 90 - 2510012F
Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
17. Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 91 - 2511005F
Til máls tók: Ásrún.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
18. Samfélagsnefnd - 7 - 2510011F
Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Gunnar Már, Birgitta Hrund, Hjálmar og Inga Fanney.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 15:00.