Fundur 1695

  • Bæjarráð
  • 19. nóvember 2025

1695. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 18. nóvember 2025 og hófst hann kl. 14:00.

Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, aðalmaður, Inga Fanney Rúnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi.

Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Í upphafi fundar óskar formaður eftir heimild til að taka inn tvö mál með afbrigðum:

2402011 AUGLÝSING um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins.

2511027 Mávahlíð 13 - 15; erindi frá Novum lögfræðiþjónustu.

Samþykkt samhljóða.

Ásrún sat fundinn í Teams.

Dagskrá:

1.      AUGLÝSING um ákvörðun innviðaráðherra til að tryggja starfhæfi sveitarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins. - 2402011

Bæjarráð Grindavíkurbæjar óskar eftir því að innviðaráðherra gefi út auglýsingu með vísan til 1. mgr. 131. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 um eftirfarandi frávik frá skilyrðum 1. mgr.14. gr. og 4. mgr. 17. gr. sömu laga:

Til að tryggja starfhæfi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar og til að auðvelda ákvarðanatöku við stjórn sveitarfélagsins, verði bæjarstjórn Grindavíkurbæjar heimilt að taka ákvarðanir sem fela í sér eftirfarandi frávik frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga og samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins:

1. Að fundir bæjarstjórnar verði haldnir á öðrum stað en mælt er fyrir í samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins og að fundir bæjarstjórnar, bæjarráðs og fastanefnda verði haldnir fyrir utan sveitarfélagið.

2. Að nefndarmenn taki þátt í fundum sveitarfélagsins með rafrænum hætti þrátt fyrir að vera ekki staddir í sveitarfélaginu eða í erindagjörðum innan lands á vegum þess.

Þess er vinsamlega óskað að auglýsingin taki gildi sem fyrst og að hún gildi í allt að sex mánuði. Heimildi fellur þó úr gildi fyrr ef ríkislögreglustjóri aflýsir almannavarnastigi í sveitarfélaginu fyrir þann tíma.

2.      Mávahlíð 13 - 15; erindi frá Novum lögfræðiþjónustu - 2511027

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar og hafnarstjóri.

Lagt fram erindi frá Novum lögfræðiþjónustu, dags. 17. nóvember 2025, þar sem krafist er afstöðu Grindavíkurbæjar til bótaskyldu vegna Mávahlíðar 13 - 15.

Málinu er vísað til næsta bæjarstjórnarfundar. Bæjarstjóra er falið að leita ráðgjafar lögmanna vegna málsins.

3.      Rammasamningur - Niðurrif altjónshúsa í Grindavík - 2511009

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar og hafnarstjóri.

Lögð fram drög að samningi við húseigendur um framkvæmd niðurrifs ásamt samningi við Consensa.

4.      Skil á lóð - Lóuhlíð 1-3 - 2508021

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar og Hafnarstjóri.

Lögð fram tillaga að svarbréfi vegna kröfu um endurgreiðslu gatnagerðargjalda.

Bæjarráð samþykkir tillögu að svari og felur bæjarstjóra að svara erindinu.

5.      Framkvæmdir við reiðleiðir í Grindavík 2026 - 2511021

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, hafnarstjóri og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Lagður fram tölvupóstur frá formanni Hestamannafélagsins Brimfaxa þar sem óskað er eftir því að ráðist verði í framkvæmdir og lagfæringar á reiðleiðum í Grindavík.

Bæjarráð bendir á að verið er að vinna heildstætt að legu göngu- og hjólastíga, reiðstíga og akstursslóða í þeirri skipulagsvinnu sem nú er í gangi.

6.      Gjaldskrá slökkviliðs Grindavíkur - 2511016

Lögð fram uppfærð gjaldská Slökkviliðs Grindavíkur.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrána.

 

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 15:05.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 13. janúar 2026

Fundur 1699

Bæjarráð / 6. janúar 2026

Fundur 1698

Bæjarstjórn / 17. desember 2025

Fundur 591

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bæjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bæjarráð / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviðanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviðanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bæjarráð / 9. september 2025

Fundur 1689

Bæjarráð / 2. september 2025

Fundur 1688

Bæjarstjórn / 26. ágúst 2025

Fundur 587

Bæjarráð / 19. ágúst 2025

Fundur 1687

Bæjarráð / 15. júlí 2025

Fundur 1686

Bæjarráð / 2. júlí 2025

Fundur 1685

Bæjarráð / 18. júní 2025

Fundur 1684

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 87