Fundur 9

  • Innviðanefnd
  • 17. september 2025

9. fundur innviðanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 23. júní 2025 og hófst hann kl. 09:00.

Fundinn sátu: Lilja Ósk Sigmarsdóttir, varaformaður, Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Unnar Á. Magnússon, aðalmaður, Páll Jóhann Pálsson, áheyrnarfulltrúi.

Einnig sátu fundinn: Sigurður A Kristmundsson, hafnarstjóri, Sigurður Rúnar Karlsson, veitustjóri, Elísabet Bjarnadóttir, skipulagsfulltrúi, Guðjón Bragason, Lögfræðingur. Fundargerð ritaði:  Elísabet Bjarnadóttir, skipulagsfulltrúi.

Gestur fundarins undir 1. lið var Skarphéðinn Berg Steinarsson, fulltrúi í Grindavíkurnefnd.

Dagskrá:

1.      Aðgerðaáætlun 2 vegna sprunguverkefnis og afhendingaröryggis veitukerfa - 2505049

Aðgerðaráætlun 2 lögð fram til kynningar. Fulltrúi frá Grindavíkurnefnd situr fundinn undir þessum lið.

2.      Umsókn um framkvæmdaleyfi - 2505028

Fyrir hönd HS Veitna sækir Guðmundur Helgi Albertsson um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu bráðabirgðarafstrengs austan við Þorbjarnarfell. Tengingin liggur á milli Selháls, yfir hraunið og að tengingu rétt innan varnargarð L7. Málið hefur verið tekið fyrir í bæjarráði en óskað er eftir samþykki innviðanefndar til að gefa út framkvæmdaleyfi.

Innviðanefnd samþykkir beiðni um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu bráðabirgðarafstrengs austan Þorbjarnarfells.

Um er að ræða fullnaðarafgreiðslu skv. 2.gr. í viðauka 1.1. í bæjarmálasamþykkt. Skipulagsfulltrúa er gert að gefa út framkvæmdarleyfi skv. 13. gr. skipulagslaga sem gildir í 12 mánuði á forsendum lýsingar. Sækja skal um framlengingu ef nauðsyn krefur.

3.      Svæðisskipulag Suðurnesja - Tillaga - 2505005

Svæðisskipulagsnefnd hefur samþykkt að senda endanlega tillögu að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2024-2040 til samþykktar sveitarstjórna á Suðurnesjum, skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar og utanríkisráðuneytisins/Landhelgisgæslunnar, skv. 3 mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan er borin undir innviðanefnd til kynningar áður en hún er lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

Innviðanefnd mælir með því að bæjarstjórn samþykki tillöguna.

4.      Tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi - tímabundin ákvæði - 2506014

Bæjarráð samþykkti að hluta tillögu skipulagsfulltrúa um óverulega breytingu á aðalskipulagi en vísaði öðrum þáttum tillögunnar til umræðu hjá innviðanefnd. Skipulagsfulltrúi og lögfræðingur Grindavíkurbæjar gera nánari grein fyrir álitaefnum, með hliðsjón af fundargerð bæjarráðs frá 1684. fundi sem haldinn var 18. júní 2025, og glærukynningu. Óskað er eftir því að innviðanefnd taki afstöðu til þess hvernig málið verði unnið áfram.

Skipulags- og umhverfissviði falið að vinna málið áfram með hliðsjón af umræðum á fundinum.

5.      Fyrirspurn til skipulags- og umhverfissviðs - Víkurhóp 51-59 - 2506011

Lögð fram fyrirspurn vegna fyrirhugaðrar nýtingar fasteigna að Víkurhópi 51-59 til skammtímaleigu. Óskað er eftir afstöðu bæjaryfirvalda varðandi áform lóðarhafa um að ljúka byggingu húsa á umræddum lóðum og mögulega útleigu þeirra til ferðamanna.

Lögfræðingi Grindavíkurbæjar falið að upplýsa fyrirspyrjanda um niðurstöðu jarðkönnunar og nýtingarmöguleika.

6.      Endurskoðun aðalskipulags 2024 - 2412019

Beiðni barst frá Vinum íslenskrar náttúru, VÍN, um að taka bréf frá þeim dags. 4.júní 2025 til afgreiðslu. Efni bréfsins snýst um mikilvægi þess að fara eftir leiðbeiningum um val á landi til skógræktar við skipulagningu sveitarfélagsins.

7.      Fundargerðir 2025 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2502040

Fundargerð 54. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja sem fram fór þann 12. 06. 2025 lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 3. mars 2026

Fundur 1704

Bæjarstjórn / 26. febrúar 2026

Fundur 593

Innviðanefnd / 23. febrúar 2026

Fundur 14

Afgreiðslunefnd byggingamála / 23. febrúar 2026

Fundur 94

Bæjarráð / 18. febrúar 2026

Fundur 1703

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 4. febrúar 2026

Fundur 1701

Bæjarstjórn / 27. janúar 2026

Fundur 592

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. janúar 2026

Fundur 93

Bæjarráð / 20. janúar 2026

Fundur 1700

Innviðanefnd / 19. janúar 2026

Fundur 13

Bæjarráð / 13. janúar 2026

Fundur 1699

Bæjarráð / 6. janúar 2026

Fundur 1698

Bæjarstjórn / 17. desember 2025

Fundur 591

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11