Pistill bćjarstjórnar: Framkvćmdir, mikilvćgt samtal og dvalarsamningar

  • Fréttir
  • 11. september 2025

Það hefur verið hlýtt og fallegt í Grindavík í sumar. Um 80 fjölskyldur og einstaklingar gátu dvalið í íbúðum Þórkötlu á grundvelli dvalarsamninga og þannig haldið tengslum við bæinn sinn. Við treystum því að samningarnir verði framlengdir svo sem flestir geti áfram átt þennan kost fram á vetur.

Íþróttastarfið hefur sett svip sinn á Grindavík. Reglulegir fótboltaleikir, mikil fjölgun í Golfklúbbi Grindavíkur og senn hefst körfuboltatímabilið. Það skiptir okkur miklu máli að sem flestir viðburðir fari fram í Grindavík, hvort sem það eru íþrótta- eða menningarviðburðir. Það veitir Grindvíkingum orku, von og tengingu við samfélagið.

Sprunguviðgerðir og skólahúsnæði

Áfram er unnið að viðgerðum á sprungum og innviðum. Árangur hefur náðst við að bæta ásýnd bæjarins og auka öryggi. Nú standa yfir framkvæmdir á lóð íþróttamannvirkjanna. Það er táknrænt og mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu. Næsti áfangi aðgerðaáætlunar liggur fyrir og við væntum samþykktar hans á allra næstu dögum svo hægt verði að halda áfram framkvæmdum í haust.

Viðgerðir á grunnskólanum við Ásabraut eru langt komnar. Leikskólinn Laut þarfnast aðeins minniháttar viðgerða. Því er raunverulegur möguleiki á að starfsemi barna og fjölskyldna flytjist á ný inn í þessi hús á næsta ári.

Sérfræðingateymi vinnur nú að ítarlegum greiningum á húseignum nærri sprungum. Sú vinna er grundvallaratriði fyrir framtíðarskipulag bæjarins, getur minnkað ágreining um bætur og tryggingar og skapað traustari grunn fyrir ákvarðanir til framtíðar.

Samstarf við ríkisvaldið

Formlegt samtal Grindavíkurbæjar og forsætisráðuneytisins um framtíðaruppbyggingu er hafið. Við höfum lagt áherslu á að Grindavík sé hluti af framtíðinni en ekki fortíðinni. Þetta samstarf er lykillinn að skýrri stefnu í húsnæðismálum, atvinnumálum og þjónustu við íbúa.

Það er mikilvægt að íbúar viti að til staðar er raunverulegur vilji stjórnvalda til að standa með bænum okkar. Bæjarstjórn er einhuga um að vinna markvisst og samstillt að framtíð Grindavíkur með upprisu og von að leiðarljósi.

Dvalarsamningar eru nauðsynlegir fyrir tengslin

Ekki liggur fyrir hvort dvalarsamningar Grindvíkinga við Þórkötlu verði framlengdir. Bæjarstjórn telur úrræðið afar mikilvægt. Það auðveldar fólki að halda tengslum við Grindavík og styrkir grunninn fyrir endurreisn samfélagsins þegar jarðhræringunum lýkur. Bæjarstjórn leggur áherslu á að sem fyrst verði tekin ákvörðun um framlengingu og að gildistíminn nái til 1. maí 2026. Jafnframt þarf ákvörðun um mögulega leigusamninga í stað dvalarsamninga að liggja fyrir með góðum fyrirvara á næsta ári.

Áfram Grindavík!

Bæði kvenna- og karlalið Grindavíkur í fótbolta hafa nýverið fagnað góðum sigrum. Stelpurnar okkar í sameiginlegu liði með Njarðvík tryggðu sér sæti í Bestu deildinni á næsta ári. Frábær árangur sem allur bærinn getur verið stoltur af.

Karlaliðið tryggði sér mikilvægan sigur á ÍR og stefnir á áframhald í Lengjudeildinni. Þeir eiga framundan mikilvægan leik við Njarðvík á laugardaginn.

Um helgina fer fram Minningarmót Óla Jó í Grindavík. Um er að ræða fyrstu körfuboltaleikina í Grindavík frá rýmingu. Við vonumst til þess að sjá ykkur í stúkunni!

Grindavík 11. september 2025
bæjarstjórn Grindavikurbæjar


Deildu ţessari frétt