Fundur 1688

  • Bæjarráð
  • 2. september 2025

1688. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 2. september 2025 og hófst hann kl. 15:00.

Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, aðalmaður.

Einnig sátu fundinn: Fannar Jónasson, bæjarstjóri, Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Í upphafi fundar óskaði forseti eftir að taka inn eftirfarandi mál á dagskrá með afbrigðum sem 8. mál: 2509005 Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - U.M.F.G.

Samþykkt samhljóða.

Dagskrá:

1.      Landsbyggðin lifi - Málþing um áhættu og þrautsegju samfélags - 2508018

Lagt fram erindi frá félagasamtökunum "Landsbyggðin lifi" þar sem fram kemur að til standi að halda málþing í Grindavík. Óskað er eftir því að sveitarfélagið tilnefni fulltrúa til að taka þátt í málþinginu.

Bæjarráð tilnefnir Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs.

2.      Bakhópar Sambandsins í umhverfismálum - 2508022 

Gestur fundarins undir þessum dagskárlið: Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar.

Samband íslenskra sveitarfélaga vill leiða saman fulltrúa sveitarfélaga í tvo bakhópa um umhverfismál. Markmiðið er að skapa vettvang þekkingar- og upplýsingamiðlunar hjá þeim sem sinna verkefnum umhverfismála fyrir hönd sveitarfélaga. Óskað er eftir einum fulltrúa frá hverju sveitarfélagi í landinu í hvorn bakhóp fyrir sig.

Bæjarráð tilnefnir Elísabetu Bjarnadóttur, skipulagsfulltrúa í báða hópana.

3.      Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviði 2026 - 2508029

Málinu er frestað.

4.      Umsókn um viðburð - veislutjald við Kleifarvatn - 2508020

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar.

Basecamp Iceland sækir um að fá leyfi til þess að reisa veislutjald í hálfan dag við norðurenda Kleifarvatns. Þetta er 70 manna hópur og verður viðburðurinn 14. október, ef veður leyfir. Hópurinn mun snæða þar hádegismat áður en haldið er af stað í göngu í nágrenninu. Mögulega verða 2 fólksbílar og 2 kerrur með ferðaklósettum við tjaldið.

Bæjarráð setur sig ekki upp á móti viðburði en bendir á að umsóknaraðili þurfi að sækja um leyfi hjá Umhverfisstofnun þar sem þetta er á friðlýstu svæði.

5.      Beiðni um umsögn á kynningu tillögu - Borholur í Krýsuvík - 2507028

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar.

Hafnarfjarðarkaupstaður óskar eftir umsögn um eftirfarandi mál:

Mál nr. 869/2025 Krýsuvík, rannsóknarborholur, nýtt deiliskipulag
Mál nr. 867/2025 Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar, Krýsuvík vegna tilraunaborhola

Lögð fram eftirfarandi gögn:
Uppdrættir með greinargerðum og umhverfisskýrslu.
Umsögn Grindavíkurbæjar.

Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa að senda umsögnina inn í Skipulagsgátt.

6.      Skil á lóð - Lóuhlíð 1-3 - 2508021

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar.

Fjarðarsteinn ehf. óskar eftir því að aflýsa lóðarleigusamningi fyrir Lóuhlíð 1-3 sem fyrirtækið gerði við bæinn og skila lóðinni skv. meðfylgjandi uppsagnarbréfi dags. 26.ágúst.

Bæjarráð samþykkir framkomna beiðni um aflýsingu á lóðarleigusamningi og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

7.      Skil á lóð - Efrahóp 19 - 2508027

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar.

Hrannar Jón Emilsson óskar eftir því að aflýsa lóðarleigusamningi fyrir Efrahóp 19 sem hann gerði við bæinn og skila lóðinni skv. meðfylgjandi uppsagnarbréfi dags. 26.ágúst.

Bæjarráð samþykkir framkomna beiðni um aflýsingu á lóðarleigusamningi og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

8.      Tækifærisleyfi - Tímabundið áfengisleyfi - U.M.F.G. - 2509005

Knattspyrnudeild U.M.F.G. sækir um tímabundið áfengisleyfi vegna lokahófs í Gjánni 13. september nk.

Bæjarráð samþykkir veitingu leyfisins.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:00.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 13. janúar 2026

Fundur 1699

Bæjarráð / 6. janúar 2026

Fundur 1698

Bæjarstjórn / 17. desember 2025

Fundur 591

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bæjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bæjarráð / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviðanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviðanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bæjarráð / 9. september 2025

Fundur 1689

Bæjarráð / 2. september 2025

Fundur 1688

Bæjarstjórn / 26. ágúst 2025

Fundur 587

Bæjarráð / 19. ágúst 2025

Fundur 1687

Bæjarráð / 15. júlí 2025

Fundur 1686

Bæjarráð / 2. júlí 2025

Fundur 1685

Bæjarráð / 18. júní 2025

Fundur 1684

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 87