Rćtt um fćkkun bćjarfulltrúa og sveitastjórnarkosningar í Grindvík

  • Fréttir
  • 2. september 2025

Á fundi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar þann 26. ágúst sl. var lögð fram til fyrri umræðu tillaga að breytingum á samþykktum um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar.

Tillagan felur í sér að bæjarfulltrúum fækki úr sjö í fimm, frá og með næstu sveitarstjórnarkosningum.

Einnig er gert ráð fyrir því að innviðanefnd og samfélagsnefnd starfi áfram að loknum kosningum þar til ný bæjarstjórn ákveður annað fyrirkomulag.

Til þess að samþykktin öðlist gildi þarf að ræða hana tvisvar í bæjarstjórn. Bæjarstjórn mun líklega taka málið aftur fyrir á fundi sínum í lok september.

Bæjarstjórn telur ekki vera þörf fyrir sérlög um kosningar í Grindavík

Á fundinum var einnig lagt fram lögfræðiálit sem unnið var að beiðni forsætisráðuneytisins um tilgreind álitaefni vegna kosningaréttar og kjörgengis í sveitarstjórnarkosningum í Grindavíkurbæ vorið 2026.

Undir þeim lið bókaði bæjarstjórn eftirfarandi:

Bæjarstjórn telur álitsgerðina vera skýra um helstu álitaefni um framkvæmd sveitarstjórnarkosninga í Grindavík. Bæjarstjórn telur best að kosningar fari fram í Grindavík samkvæmt óbreyttum lögum og að ekki séu sett sérlög um kosningarétt og kjörgengi í Grindavíkurbæ.

Ekki liggur fyrir hver niðurstaða málsins verður en það verður unnið áfram á vettvangi forsætisráðuneytisins og Grindavíkurbæjar.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 29. janúar 2026

Tjónamati í Grindavík ađ mestu lokiđ

Fréttir / 22. janúar 2026

Dale Carnegie fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 6. janúar 2026

Miđvikudagskaffi í Kvikunni

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 16. desember 2025

Mánudagskaffiđ verđur nćst 12. janúar