Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur hefur spilað frábærlega í Lengjudeild kvenna í sumar. Á laugardaginn tryggðu þær sér mikilvægan 0–1 sigur gegn Keflavík með marki frá Brookelynn Entz.
Með sigrinum komust stelpurnar í þá stöðu að leika úrslitaleik við HK um annað sæti deildarinnar, sæti sem tryggir þátttökurétt í Bestu deildinni á næsta ári. HK er í öðru sætinu eins og er og þarf því Grindavík/Njarðvík sigur í leiknum til að landa sæti í efstu deild.
Úrslitaleikurinn fer fram á JBÓ-vellinum í Njarðvík fimmtudaginn 4. september kl. 17:30. Grindvíkingar eru hvattir til að fjölmenna á völlinn og styðja stelpurnar í þessari spennandi baráttu!
Áfram Grindavík/Njarðvík!