Kótilettudagurinn til styrktar Endó-samtökunum

  • Fréttir
  • 29. ágúst 2025

Laugardaginn 30. ágúst milli kl. 12:00 og 20:00 standa ToyRun samtökin á Íslandi fyrir kótilettudeginum á Sjómannastofunni Vör.

Boðið verður upp á kótilettur í raspi eins og gestir geta í sig látið og kleinur frá Hérastubbi og hraunbita frá Góu með kaffinu fyrir aðeins 6.500 kr.

Gylfi Hauksson, forsvarsmaður ToyRun á Íslandi, hefur haft í nógu að snúast síðustu daga og segir að búið sé að útvega yfir 100 kg af kótilettum fyrir morgundaginn. Hann hvetur Grindvíkinga sem og landmenn alla til að mæta enda sé viðburðurinn opinn öllum.

Í ár rennur ágóðinn til Í ár rennur ágóðinn til Endó-samtakanna, sem vinna að fræðslu og stuðningi fyrir konur sem glíma við endómetríósu og aðstandendur þeirra.

ToyRun söfnunin á sér langa sögu. Upphaflega hófu mótorhjólamenn í Bandaríkjunum að safna leikföngum handa börnum. Í Grindavík hafa mótorhjólamenn og konur safnað fyrir góðum málstað í mörg ár undir sama heiti.

Helstu styrktaraðilar viðburðarins eru Sjómannastofan Vör, Hérastubbur og Góa.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 29. janúar 2026

Tjónamati í Grindavík ađ mestu lokiđ

Fréttir / 22. janúar 2026

Dale Carnegie fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 6. janúar 2026

Miđvikudagskaffi í Kvikunni

Fréttir / 16. desember 2025

Opnunartími um jól og áramót

Fréttir / 16. desember 2025

Mánudagskaffiđ verđur nćst 12. janúar