Þann 1. ágúst kl. 20:00 mun austurríska kammerhljómsveitin accio piano trio halda tónleika í Grindavíkurkirkju. Tríóið skipa þau Clemens Böck (fiðla), Anne Sophie Keckeis (selló) og Christina Scheicher (píanó), en þau hafa starfað saman í rúman áratug.
Tríóið var stofnað við Mozarteum-tónlistarskólann í Salzburg árið 2013 og hefur komið fram víðs vegar um Evrópu, Bandaríkin og Asíu. Þau hafa með ástríðu fyrir kammertónlist leitast þau við að skapa einstakar tónlistarupplifanir sem vekja tilfinningar, minningar og ímyndir hjá hlustendum. Á efnisskrá tríósins eru verk úr klassískri Vínartónlist, samtímatónlist eftir ungt austurrískt tónskáldafólk og sjaldheyrð verk, ekki síst eftir konur.
Tónleikarnir bera yfirskriftina "On fire, light and dark". Þar leiðir tríóið áheyrendur í gegnum meira en 200 ára tónlistarsögu, frá dramatík Haydns og eldgoðsmyndunum í verki Murphy, til tilfinningasveifla og fegurðar í hinu epíska tríói Schuberts.
Hér má hlusta á tóndæmi á Youtube.
Tónleikarnir eru öllum opnir og er aðgangur ókeypis.
Tónleikarnir eru haldnir með stuðningi Grindavíkurbæjar, Grindavíkurkirkju og austurrísku sendiráðsins í Kaupmannahöfn.