Sjómannadagurinn aftur í Grindavík - Ert ţú ađ skipuleggja viđburđ?

  • Fréttir
  • 11. maí 2025

Það er ánægjulegt að greina frá því að hátíðarhöld verða í Grindavík í tilefni sjómannadagsins í ár. Við hvetjum alla Grindvíkinga til að taka daginn frá og taka þátt í hátíðarhöldunum. 

Sjómannadaginn í ár ber upp á 1. júní og mun dagskrá hefjast með sjómannamessu kl. 13:00 í Grindavíkurkirkju. Að lokinni messu verður gengið að minnisvarðanum Von. Í kjölfarið verður fjölskyldudagskrá við Kvikuna með m.a. hoppuköstulum og öðrum skemmtilegum viðburðum.

Þau sem hyggja á opna viðburði eða sérstaka dagskrá í tilefni dagsins eru hvattir til að hafa samband við Grindavíkurbæ svo hægt sé að koma því á framfæri í opinberri dagskrá á vef bæjarins og samfélagsmiðlum. Sendið póst á grindavik@grindavik.is eða látið vita með athugasemd.

Að auki hvetur Grindavíkurbær alla Grindvíkinga til að nýta góða veðrið í maí til að taka til í kringum sitt nánasta umhverfi og gera bæinn okkar enn snyrtilegri fyrir hátíðina.

Við hlökkum til að sjá sem flesta og fögnum saman sjómannadeginum!


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 24. febrúar 2026

Bćjarstjórnarfundur 26. febrúar 2026

Fréttir / 23. febrúar 2026

Ásrún í milliliđalausu spjalli

Fréttir / 16. febrúar 2026

Myndamorgunn í Kvikunni

Fréttir / 5. febrúar 2026

Handavinnustund í Grindavík

Fréttir / 2. febrúar 2026

Lokađ fyrir kalt vatn á Bađsvöllum í dag

Fréttir / 29. janúar 2026

Tjónamati í Grindavík ađ mestu lokiđ