Mánudaginn 5. maí sl. fór fram samráðs- og upplýsingafundur í Grindavík þar sem rætt var um öryggi Grindavíkurvallar og hvernig tryggja megi öryggi gesta, starfsfólks og keppenda á svæðinu. Fundinn sátu m.a. fulltrúar Grindavíkurbæjar, UMFG, KSÍ, Íslensks toppfótbolta, slökkviliði, lögreglu, öryggisstjóri vettvangsstjórnar í Grindavík og jarðfræðingar frá Eflu og ÍSOR.
Niðurstöður jarðsjármælinga staðfesta öryggi svæðisins
Á fundinum voru lögð fram nýjustu gögn og niðurstöður jarðsjármælinga fyrir keppnis- og æfingasvæði knattspyrnudeildar UMFG í Grindavík. Gögnin sýna að ekkert bendir til hættu á yfirborði vallarins. Jarðfræðingar sem metið hafa svæðið staðfesta að berggrunnur á svæðinu sé stöðugur, og gripið hafi verið til viðeigandi öryggisráðstafana þar sem sprungur nálgast íþróttasvæðið.
Viðgerðir og styrkingar auka stöðugleika
Gert hefur verið við fjölmargar sprungur innan Grindavíkur á undanförnum mánuðum. Viðgerðir eru uppbyggðar með jarðtæknilegum styrkingum og hafa þær viðgerðir góðan hreyfanleika og eiga auðvelt með að þola frekari aflögun. Jafnframt hafa svæði innan Grindavíkur verið álagsprófuð og staðist umfangsmiklar álagsprófanir.
Afmörkun og merkingar við jaðarsvæði
Í samræmi við ráðleggingar fagfólks hafa öll svæði sem metin eru hættuleg verið girt af með 2 metra háum girðingum og merkt með skiltum sem banna umferð. Grindavíkurbær ítrekar að óheimilt er að klifra yfir girðingarnar sem hafa verið settar upp við jaðra íþróttasvæðisins. Þær girða af svæði sem teljast óörugg og eru hluti af öryggisráðstöfunum innanbæjar. Virðing fyrir þeim takmörkunum er mikilvæg fyrir öryggi allra.
Öll mannvirki metin örugg til notkunar
Við stöðuskoðun á mannvirkjum Grindavíkurvallar þann 30. apríl voru engar skemmdir sjáanlegar og ekki voru merki um hreyfingar. Öll mannvirki eru talin örugg til notkunar. Þetta á við um búningsklefa, áhorfendastúku og knattspyrnuvöllinn sjálfan.
Rýmingaráætlun til staðar – áhersla á skýrt verklag
Knattspyrnudeild UMFG hefur unnið ítarlega rýmingaráætlun, sem lögð hefur verið fyrir viðeigandi viðbragðsaðila, sem tryggir skýrar rýmingarleiðir og skýrt verklag ef rýma þarf svæðið. Sérstök áhersla er lögð á börn og ungmenni og hefur verið skilgreindur söfnunarstaður fyrir þau.
Endurmat ef hættustig breytist
Ef og þegar breyting verður á hættustigi vegna jarðhræringa mun staða Grindavíkurvallar þegar í stað verða endurmetin í samstarfi við sérfræðinga.
Gestir boðnir velkomnir til Grindavíkur!
Grindavíkurbær og UMFG leggja áherslu á að íþróttastarfsemi eigi sér stað við bestu mögulegu öryggisskilyrði og að gestir geti mætt á Grindavíkurvöll með traust og öryggistilfinningu. Minnt er á að Grindavík hefur verið opinn almenningi síðan 21. október 2024.
Hér að neðan má lesa þau gögn sem lögð voru fyrir fundinn:
Gerðu meira úr heimsókn til Grindavíkur í sumar!
Í tengslum við heimsókn á Grindavíkurvöll er tilvalið að skoða það sem bærinn hefur upp á að bjóða. Í Grindavík má finna veitingastaði, gistingu og afþreyingu. Kynntu þér það sem í boði er á visitgrindavik.is.