1681. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 6. maí 2025 og hófst hann kl. 14:00.
Fundinn sátu: Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi, Sævar Þór Birgisson, varaformaður.
Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. Endurskoðun aðalskipulags 2024 - 2412019
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi.
Lögð fram kynning frá sænska arkitektafyrirtækinu ''White Arkitekter'' en þau hafa áhuga á því að taka þátt í enduruppbyggingu bæjarins með því sem þau kalla Vision Workshop.
Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa að upplýsa arkitektafyrirtækið um að slík vinnustofa geti verið síðar í vinnu við aðalskipulagið.
2. Endurskoðun svæðisskipulags Suðurnesja - 2303004
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri og skipulagsfulltrúi.
Í Svæðisskipulagi Suðurnesja eru tilgreindar fjórar sviðsmyndir um fyrirkomulag raflína Landsnets á Suðurnesjum. Innviðanefnd telur að hringtenging, sem kynnt er sem valkostur 2, sé best til þess fallin að tryggja raforkuöryggi í Grindavík til framtíðar.
Bæjarráð telur mikilvægt að Grindavíkurbær leggi fram umsögn um kerfisáætlun Landsnets og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
3. Ályktun aðalfundar Skógfræðingafélags Íslands um sérþekkingu skógfræðinga - 2504017
Ályktun aðalfundar Skógfræðingafélag Íslands frá 25. mars sl. lögð fram. Félagið lýsir sig tilbúið til að ræða við og fræða sveitarstjórnir og þá sem fara með umhverfismál hjá sveitarfélögum um uppbyggingu og umhirðu skógarsvæða í og við þéttbýli.
4. Aðstaða til knattspyrnuiðkunar - 2504022
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, umsjónarmaður þjónustumiðstöðvar (Teams), skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Við stöðuskoðun á mannvirkjum Grindavíkurvallar þann 30. apríl voru engar skemmdir sjáanlegar og ekki voru merki um hreyfingar. Öll mannvirki eru talin örugg til notkunar. Þetta á við um búningsklefa, áhorfendastúku og knattspyrnuvöllinn sjálfan.
5. Endurnýjun á ærslabelg - 2504021
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, umsjónarmaður þjónustumiðstöðvar (Teams), skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Lögð fram fyrirspurn um uppsetningu á nýjum ærslabelg í Grindavík en sá sem fyrir var skemmdist 10. nóvember 2023.
Bæjarráð leggur til að nýjum ærslabelg verði valinn staður á grunnskólalóðinni. Tillaga um fjármögnun innan eignfærðar áætlunar verði með lækkun á endurnýjun á þaki Tónlistarskóla og bókasafns. Bæjarráð vísar viðaukabeiðninni til bæjarstjórnar.
6. Íþóttavöllur frágangur svæðiðs og bílastæði við Hópið - 2505001
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, umsjónarmaður þjónustumiðstöðvar (Teams), skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Lagt fram til umræðu mál sem varðar viðgerð og yfirborðsfrágang á bílastæði við Hópið og vegtengingu við það frá Austurvegi.
Bæjarráð samþykkir áformin.
7. Aðgerðalisti forgangsröðun verkefna 2025 og næstu ára - 2504014
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Skipulagsfulltrúi og hafnarstjóri.
Raforkuöryggi og raforkuframboð í Grindavík er ófullnægjandi miðað við þá orkuþörf sem nú er kallað er eftir. Núverandi ástand og afkastageta á rafstreng á svo kallaðri Arfadalsleið til Grindavíkur er óboðleg og hefur neikvæð áhrif á endurreisn atvinnulífs og þar með endurreisn bæjarins. Strengur sem liggur í svokallaðri Arfadalsleið var lagður á bert hraun og hann fergjaður með þeim hætti að hann getur fyrirvaralaust farið í sundur og þar með er bærinn rafmagnslaus. Ekki er á það treystandi að Landsnet leggi til varaaflsvélar sem og dæmin hafa margsýnt. Eitt að forgangsverkefnum sem tiltekið er í lið 5 í Aðgerðalista Grindavíkurbæjar er raforkuöryggi.
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram.
8. Útleiga á íbúðum í eigu Grindavíkurbæjar. - 2503013
Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og umsjónarmaður þjónustumiðstöðvar.
Lagt fram minnisblað um möguleika á útleigu íbúða í eigu Grindavíkurbæjar.
Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
9. Fasteignagjöld 2025 - 2412016
Lagt fram yfirlit yfir álögð fasteignagjöld á árinu 2025.
Álögð fasteignagjöld eru í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar á fundi 584 en þar var eftirfarandi tillaga samþykkt: Alþingi samþykkti þann 31.01.2024, lög nr. 979/2024, um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (fasteignaskattur í Grindavíkurbæ) sem tóku til heimildar vegna ársins 2024. Þann 10. apríl 2025 samþykkti Alþingi lög um framlengingu á þessum heimildum fyrir árið 2025.
Með vísan til þessara laga er hér lögð fram tillaga um að falla frá álagningu fasteignaskatts í Grindavík fyrir árið 2025 á eftirfarandi eignir:
Að fallið verði frá álagningu á eignir sem falla undir a- og c- lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og eru innan þéttbýlismarka Grindavíkur skv. aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032. Aðrar eignir en þarna falla undir munu fá álagðan fasteignaskatt á árinu 2025.
Auk þess er lagt til að ekki verði álagning eftirfarandi gjalda: Lóðarleiga, vatnsgjald, fráveitugjald og sorpgjöld. Aukavatnsskattur verður álagður skv. álestri vatnsmæla.
Jafnframt er lagt til að gjalddagaskipting fasteignagjalda verði breytt þannig að gjalddagar fasteignagjalda fyrir árið 2025 verði 8 í stað 10 og sá fyrsti verði 1. maí 2025 og sá síðasti 1. desember 2025.
Tillagan er sett fram í ljósi þess að enn eru takmarkanir á aðgengi og nýtingu fasteigna innan þéttbýlis í Grindavík en slíkt á ekki við um önnur svæði innan lögsögu Grindavíkurbæjar.
Álögð gjöld á árinu 2025 eru 299,1 milljón króna.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 16:05.