Skráning í málefnahóp fyrir vinnustofu á vegum Járngerđar

  • Fréttir
  • 2. maí 2025

Járngerður ýtir úr vör hópavinnu og verður fyrsta vinnustofan haldin laugardaginn 17. maí kl. 9-13. Dagskrá vinnustofunnar verður send út þegar nær dregur. Skráning í málefnahópa er hafin og fer fram rafrænt hér.

Við hvetjum alla til að skrá sig í málefnahópa og taka þátt í vinnustofunni. Þar gefst okkur tækifæri til að hittast og leggja fram okkar sýn.

Við viljum vekja athygli á að tveir af málefnahópunum, “Sýn ungmenna” og “Sýn unga fólksins”, eru hugsaðir fyrir þann aldur sem tilgreindur er á hvorum hóp fyrir sig. Við viljum því hvetja þennan aldurshóp til að skrá sig í hópa og taka þátt í vinnustofunni með okkur.

Nýlega sendum við út fjölpóst á alla félagsmenn og þá sem skráðu sig á póstlista Járngerðar.  Okkur langar að biðja þá sem ekki fengu póstinn að kanna hvort hann hafi mögulega farið í ruslpóst. Ef ekki, vinsamlegast hafið samband við okkur á jarngerdur@hotmail.com og við yfirförum skráningu ykkar.

Við vonum að áfram fjölgi í Járngerði og hvetjum alla sem bera hag Grindavíkur fyrir brjósti að skrá sig í félagið og taka þátt í starfinu.  Minnum á að samstaða okkar Grindvíkinga skiptir miklu máli við endurreisn bæjarins.

Við trúum því að sumarið verði gott í Grindavík og að líf færist í bæinn.

Kveðja,
stjórn Járngerðar.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. desember 2025

Firmamót knattspyrnudeildar UMFG

Fréttir / 5. desember 2025

Samverustundir í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 26. nóvember 2025

Pálínu-Jólabođ FEB Grindavík

Fréttir / 21. nóvember 2025

Fjörugur föstudagur - Dagskrá

Fréttir / 16. nóvember 2025

Konukvöld KVAN fyrir konur úr Grindavík

Fréttir / 14. nóvember 2025

Niđurrif altjónshúsa í Grindavík

Fréttir / 14. nóvember 2025

Grindavík Committee Announcement

Fréttir / 11. nóvember 2025

Jólasamverustund í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 11. nóvember 2025

33 úr Grindavík fengu styrk úr Sóknarsjóđi

Fréttir / 31. október 2025

Allra heilagra messa í Grindavíkurkirkju