Pílukastararnir og mæðginin Steinunn Dagný Ingvarsdóttir og Alexander Veigar Þorvaldsson voru í dag, 1. maí, útnefnd íþróttakona og íþróttakarl Grindavíkur 2024. Meistaraflokkur karla í körfuknattleik hlaut nafnbótina íþróttalið Grindavíkur 2024 og Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari liðsins, var útnefndur þjálfari Grindavíkur 2024. Verðlaunin voru afhent að viðstöddu margmenni í „nýja“ íþróttasalnum í Grindavík, þar sem mikil stemning og samstaða ríkti.
Steinunn Dagný Ingvarsdóttir, íþróttakona Grindavíkur
Steinunn átti frábært keppnisár bæði innanlands og erlendis. Hún keppti með íslenska landsliðinu á Norðurlanda- og Evrópumeistaramótum þar sem kvennaliðið náði sínum besta árangri í áratugi. Hún varð Íslandsmeistari með Pílufélagi Grindavíkur og einnig Íslandsmeistari í tvímenningi. Steinunn vann til fjölmargra verðlauna á öðrum mótum og var önnur stigahæsta konan á stigalista ÍPS árið 2024.
Alexander Veigar Þorvaldsson, íþróttakarl Grindavíkur
Alexander hélt áfram að sanna sig sem einn fremsti pílukastari landsins. Hann var stigahæsti karlinn á stigalista ÍPS 2024 og Íslandsmeistari með Pílufélagi Grindavíkur. Hann keppti með íslenska landsliðinu á alþjóðlegum vettvangi þar sem liðið náði sínum besta árangri í áratugi. Keppnisár Alexanders var afar glæsilegt bæði innanlands og utan.
Meistaraflokkur karla í körfuknattleik, íþróttalið Grindavíkur
Lið meistaraflokks karla í körfuknattleik vakti mikla athygli á árinu 2024 og komst í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn, þar sem liðið laut í lægra haldi gegn Val. Liðið hefur á undanförnum árum eflt stöðu sína í fremstu röð íslensks körfubolta og sýnt mikla samstöðu, leikgleði og baráttu.
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur
Jóhann Þór tók við meistaraflokki karla á ný árið 2022, eftir að hafa áður stýrt liðinu á árunum 2015–2019. Undir hans stjórn hefur liðið sýnt stöðugan árangur og baráttuanda, og árið 2024 náði hann með liðinu öllum leið í úrslit Íslandsmótsins. Jóhann Þór hefur unnið ötullega að uppbyggingu og árangri liðsins, sem skilaði sér með frábæru keppnisári.