Fundur 584

  • Bæjarstjórn
  • 30. apríl 2025

584. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 29. apríl 2025 og hófst hann kl. 14:00.

Fundinn sátu: Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður, Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður, Sævar Þór Birgisson, aðalmaður.

Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Í upphafi fundar óskar forseti eftir að taka inn 6 mál með afbrigðum en það eru fjórar fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga og tvær fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og eru nr. 7-12 í dagskránni.

Samþykkt samhljóða.

Birgitta Hrund og Sævar Þór sátu fundinn í gegnum Teams.

Dagskrá:

1. Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviði 2025 - 2408037

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, Klara Bjarnadóttir, formaður UMFG, Haukur Guðberg Einarsson, formaður knattspyrnudeildar UMFG, Ingibergur Þór Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar UMFG og Tómas Þór Eiríksson.

Til máls tóku: Ásrún, sviðsstsjóri frístunda- og menningarsviðs, Ingibergur, Birgitta Rán, Gunnar Már, Haukur, Hjálmar, Hallfríður, Tómas, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Birgitta Hrund og Klara.

Drög að samningi vegna stuðnings við Ungmennafélag Grindavíkur og sameiginleg yfirlýsing Grindavíurbæjar og UMFG eru lögð fram.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samning og yfirlýsing og felur forseta bæjarstjórnar að undirrita fyrir hönd bæjarins.

2. Samningur um stuðning við Björgunarsveitina Þorbjörn 2025 - 2502045

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Til máls tóku: Ásrún og sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.

Samningur við Björgunarsveitina Þorbjörn lagður fram til samþykktar. Bæjarráð hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti.

Bæjarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.

3. Aðgerðalisti forgangsröðun verkefna 2025 og næstu ára - 2504014

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Hafnarstjóri.

Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, hafnarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Birgitta Rán, Hjálmar og Birgitta Hrund.

Lögð fram drög að aðgerðalista fyrir árið 2025 og til næstu ára.

Bæjarstjórn leggur áherslu á að formlegt samtal eigi sér stað sem fyrst við Grindavíkurnefndina og forsætisráðuneytið til að ræða fjármögnun verkefna sem ráðast þarf í á þessu ári.

4. Fasteignagjöld 2025 - 2412016

Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Birgitta Rán, Hjálmar og Birgitta Hrund.

Tillaga

Alþingi samþykkti þann 31.01.2024, lög nr. 979/2024, um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (fasteignaskattur í Grindavíkurbæ) sem tóku til heimildar vegna ársins 2024. Þann 10. apríl 2025 samþykkti Alþingi lög um framlengingu á þessum heimildum fyrir árið 2025.

Með vísan til þessara laga er hér lögð fram tillaga um að falla frá álagningu fasteignaskatts í Grindavík fyrir árið 2025 á eftirfarandi eignir:

Að fallið verði frá álagningu á eignir sem falla undir a- og c- lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og eru innan þéttbýlismarka Grindavíkur skv. aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032. Aðrar eignir en þarna falla undir munu fá álagðan fasteignaskatt á árinu 2025.

Auk þess er lagt til að ekki verði álagning eftirfarandi gjalda: Lóðarleiga, vatnsgjald, fráveitugjald og sorpgjöld. Aukavatnsskattur verður álagður skv. álestri vatnsmæla.

Jafnframt er lagt til að gjalddagaskipting fasteignagjalda verði breytt þannig að gjalddagar fasteignagjalda fyrir árið 2025 verði 8 í stað 10 og sá fyrsti verði 1. maí 2025 og sá síðasti 1. desember 2025.

Tillagan er sett fram í ljósi þess að enn eru takmarkanir á aðgengi og nýtingu fasteigna innan þéttbýlis í Grindavík en slíkt á ekki við um önnur svæði innan lögsögu Grindavíkurbæjar.

Þessi tillaga er í samræmi við það sem ákveðið var í fjárhagsáætlun 2025.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillöguna.

5. Skýrsla um stjórnsýsluskoðun hjá Grindavíkurbæ - 2504004

Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Guðjón, Birgitta Hrund og Hallfríður.

Lögð fram lokaskýrsla KPMG til bæjarstjóra um stjórnsýsluskoðun hjá Grindavíkurbæ vegna ársins 2024.

Bæjarstjóra falið að gera þær úrbætur sem bent er á í skýrslunni.

6. Efrahóp 18 - Tilboð til Grindavíkurbæjar um innlausn - 2504015

Sævar Þór víkur af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.

Til máls tóku: Ásrún, Guðjón, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta Rán, Gunnar Már og Birgitta Hrund.

Bæjarstjórn telur sér ekki fært að verða við erindinu.

Guðjón vék af fundi kl. 16:05

7. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga - 2502014

Til máls tóku: Ásrún og Sævar.

Fundargerð 973. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 14.03.2025 er lögð fram til kynningar.

8. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga - 2502014

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 974. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 19.03.2025 er lögð fram til kynningar.

9. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga - 2502014

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 975. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 20.03.2025 er lögð fram til kynningar.

10. Fundargerðir 2025 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga - 2502014

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 976. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 04.04.2025 er lögð fram til kynningar.

11. Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - 2501030

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Birgitta Hrund.

Fundargerð 810. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 12.03.2025 er lögð fram til kynningar.

12. Fundargerðir 2025 - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - 2501030

Til máls tóku: Ásrún og Hallfríður.

Fundargerð 811. fundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum dags. 09.04.2025 er lögð fram til kynningar.

13. Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð - 2501029

Til máls tóku: Ásrún, Gunnar Már, Birgitta Rán, Hjálmar, Hallfríður, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Sævar.

Fundargerð 566. fundar Kölku dags. 11.02.2025 er lögð fram til kynningar.

14. Fundargerðir 2025 - Kalka sorpeyðingarstöð - 2501029

Til máls tóku: Ásrún,

Fundargerð 567. fundar Kölku dags. 11.03.2025 er lögð fram til kynningar.

15. Bæjarráð Grindavíkur - 1679 - 2503011F

Til máls tóku Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

16. Bæjarráð Grindavíkur - 1680 - 2504001F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

17. Innviðanefnd - 6 - 2503010F

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 16:30.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarstjórn / 20. maí 2025

Fundur 585

Innviðanefnd / 16. maí 2025

Fundur 8

Innviðanefnd / 23. apríl 2025

Fundur 7

Bæjarráð / 14. maí 2025

Fundur 1682

Bæjarráð / 7. maí 2025

Fundur 1681

Bæjarstjórn / 30. apríl 2025

Fundur 584

Bæjarráð / 10. apríl 2025

Fundur 1680

Innviðanefnd / 26. mars 2025

Fundur 6

Bæjarstjórn / 25. mars 2025

Fundur 583

Bæjarráð / 11. mars 2025

Fundur 1678

Bæjarráð / 4. mars 2025

Fundur 1677

Bæjarstjórn / 26. febrúar 2025

Fundur 582

Bæjarráð / 18. febrúar 2025

Fundur 1676

Innviðanefnd / 17. febrúar 2025

Fundur 5

Bæjarstjórn / 28. janúar 2025

Fundur 581

Bæjarráð / 21. janúar 2025

Fundur 1675

Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. janúar 2025

Fundur 86

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júlí 2024

Fundur 82

Afgreiðslunefnd byggingamála / 29. maí 2024

Fundur 81

Afgreiðslunefnd byggingamála / 27. maí 2024

Fundur 80

Afgreiðslunefnd byggingamála / 18. apríl 2024

Fundur 79

Afgreiðslunefnd byggingamála / 29. nóvember 2024

Fundur 85

Afgreiðslunefnd byggingamála / 20. nóvember 2024

Fundur 84

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. ágúst 2024

Fundur 83

Afgreiðslunefnd byggingamála / 8. júní 2023

Fundur 73

Afgreiðslunefnd byggingamála / 11. maí 2023

Fundur 72

Innviðanefnd / 16. desember 2024

Fundur 3

Innviðanefnd / 15. janúar 2025

Fundur 4

Bæjarráð / 14. janúar 2025

Fundur 1674

Samfélagsnefnd / 15. janúar 2025

Fundur 4