Góđan daginn Grindvíkingur – Hlađvarpsţćttir úr Grindavík

  • Fréttir
  • 17. apríl 2025

Grindavíkurbær hefur á síðustu vikum gefið út sex þætti í hlaðvarpsseríunni Góðan daginn Grindvíkingur, þar sem Grindvíkingar og aðrir aðilar sem tengjast Grindavík fá tækifæri til að segja sína sögu og deila reynslu sinni. Þættirnir eru hluti af því að efla upplýsingagjöf, viðhalda tengslum við samfélagið og varðveita dýrmætar heimildir um lífið í Grindavík á þessum óvenjulegu tímum.

Viðmælendur í fyrstu sex þáttunum eru:

Þættirnir eru unnir af starfsfólki Grindavíkurbæjar í samstarfi við Óskar Kristinn Vignisson, sem sér um upptökur og tæknimál.

Verkefnið er styrkt af Rauða krossi Íslands með fjármagni frá Rio Tinto og hafa 10 þættir verið fjármagnaðir. Ef hlustun heldur áfram og áhugi samfélagsins er fyrir hendi er vonast til að hægt verði að halda áfram með verkefnið.

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Við hvetjum íbúa til að hlusta og senda okkur ábendingar um áhugaverða viðmælendur eða ef eitthvað mætti bæta.

Skilaboð má senda á Facebook eða með tölvupósti á grindavik@grindavik.is.


Deildu ţessari frétt