Mikil aukning í lönduđum afla í Grindavík

  • Fréttir
  • 7. apríl 2025

Áttföld aukning varð af lönduðum bolfiski fyrstu þrjá mánuði ársins samanborið við landaðan afla 2024. Landaður bolfiskur var í fyrra 12,5%  í Grindavíkurhöfn miðað við 2023 en erum nú komin í tæplega 60%. Þessi aukning hefur orðið þrátt fyrir afleit veðurskilyrði í febrúar og viðvarandi hættustig Almannavarna þar sem höfnin missti margar landanir skipa í aðrar hafnir.

Það má því segja með vissu að botninum hafi verið náð í fyrra þar sem umsvif í Grindavíkurhöfn hefur tekið umtalsverðan kipp frá því sem þá var. 

Um helgina lönduðu 4 togarar þeir Bergur VE 44, Vestmanney VE 54, Áskell ÞH 48  og Vörður ÞH 44 samtals 335 tonnum og nú í morgunsárið er Páll Jónsson GK 7 að landa um 100 tonnum.

Í vikunni er gert ráð að hið nýja glæsilega skip Ganta ehf Hulda Björnsdóttir GK 11, Sighvatur GK 57 ásamt togurunum fjórum sem lönduðu nú um helgina plús Jóhönnu Gísla komi inn til löndunar. Von er á að línubátar og handfærabátar komi von bráðar til hafnarinnar með öllum þeim umsvifum sem þeim fylgir. 

Það er því að verða sannkölluð vertíðarstemning í Grindavík ef allt gengur eftir.        


 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 17. apríl 2025

Opnunartími sundlaugarinnar um páskana

Fréttir / 16. apríl 2025

Ţurfum ađ fá heimild til ađ gista heima

Fréttir / 16. apríl 2025

„Viđ förum aftur heim“

Fréttir / 11. apríl 2025

Ný stuđningsúrrćđi fyrir Grindvíkinga

Fréttir / 4. apríl 2025

Gefđu von

Fréttir / 1. apríl 2025

Eldgos hafiđ rétt norđur af Grindavík