Ađgengi takmarkađ til Grindavíkur

  • Fréttir
  • 3. apríl 2025

Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa i Grindavíkurbæ hefur í dag uppfært áhættumat m.a. fyrir þéttbýlið í Grindavík en niðurstöður eru þessar: 

,,Á grundvelli áhættumats verkfræðistofunnar, sem m.a. tekur tillit til hættumats Veðurstofunnar og þeirra varna sem eru til staðar og unnið er sífellt að, er það niðurstaða Framkvæmdanefndarinnar og Almannavarnadeildar að áhætta allra aðila sé mjög há, sem þýðir að varnir gegn hættum séu til staðar en mikil hætta sé á alvarlegum atburðum.

Því er fólki, öðrum en viðbragðsaðilum og þeim sem starfa sinna vegna þurfa að vera á ferðinni í Grindavík, ráðið frá því að vera á svæðinu.

Áhættumat verkfræðistofunnar Örugg er unnið fyrir þrjú svæði, þ.e.

1) gossvæði/sprengisvæði,

2) Svartsengi og

3) Grindavík (þéttbýli).

Matið er unnið fyrir fjóra hópa, þ.e.

1) viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka,

2) íbúa,

3) fyrirtæki og

4) ytri aðila og ferðamenn.

Í Grindavík er áhætta metin há fyrir viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka,

mjög há fyrir íbúa og fyrirtæki og

óásættanleg fyrir ytri aðila og ferðamenn.

Á Svartsengissvæðinu er áhætta talin miðlungs fyrir viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka en há fyrir fyrirtæki, ytri aðila og ferðamenn.

Á gos-/sprengisvæði er áhættan hins vegar óásættanleg fyrir alla aðila. Mælt er gegn því að óviðkomandi fari inn á gos- og sprengisvæði.
Farið er í eftirlitsferðir hvern morgun, og yfir daginn, til að kanna hvort einhverjar varnir hafi gefið sig og gert við lokanir þar sem þess kann að gerast þörf. 
Áhættumatið gildir þar til nýtt áhættumat er gefið út.“

Áhættumatið verður birt á heimasíðu almannavarna á slóðinni:  Almannavarnir

Hér má lesa frétttilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. desember 2025

Ný könnun um hagi og áform Grindvíkinga

Fréttir / 25. nóvember 2025

Rýmingarflautur prófađar á miđvikudaginn

Fréttir / 20. nóvember 2025

Hvađ finnst Grindvíkingum sjálfum?

Fréttir / 16. nóvember 2025

Ari Trausti og Pétur í Kvikunni

Fréttir / 14. nóvember 2025

Hjólaskautaat í Grindavík á laugardaginn

Fréttir / 11. nóvember 2025

Jólasamverustund í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 31. október 2025

Allra heilagra messa í Grindavíkurkirkju

Fréttir / 30. október 2025

Úrvalsdeildin í pílukasti í Grindavík

Fréttir / 30. október 2025

Ari Trausti og Elliđi Vignisson í Kvikunni

Fréttir / 28. október 2025

Ari Eldjárn sýnir í Grindavík

Fréttir / 27. október 2025

Rýmingarflautur prófađar á miđvikudaginn