Fundur 84

  • Afgreiðslunefnd byggingamála
  • 21. janúar 2025

84. fundur Afgreiðslunefndar byggingar- og skipulagsmála haldinn í Tollhúsi við Tryggvagötu, miðvikudaginn 20. nóvember 2024 og hófst hann kl. 14:30.

Fundinn sátu:
Elísabet Bjarnadóttir, sérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs, Bjarni Rúnar Einarsson, byggingarfulltrúi, Sigurður A Kristmundsson, sviðsstjóri, Guðjón Bragason, lögfræðingur.


Fundargerð ritaði:  Elísabet Bjarnadóttir, skipulagsfulltrúi.


Dagskrá:

1.      Norðurljósavegur 9a - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - 2411028
    Fyrir hönd Eldvarpa ehf. sækir Sigríður S. Sigþórsdóttir um byggingarleyfi fyrir nýju móttökuhúsi á L222979 Norðurljósavegi 9a í umgangsflokki 3. skv. uppdráttum frá Basalt arkitektum dags. 01.11.2024. Tekið er fram í umsókn að þessi framkvæmd sé unnin í nánu samstarfi við almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og eftirlitsaðila vegna aðstæðna sem skapast hafa við eldgos undanfarna mánuði. 

Byggingaráform samþykkt. 

Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. reglugerðarinnar hafa verið uppfyllt.
         
2.      Lóuhlíð 1-3 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif) - 2409008
    Fjarðarsteinn ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir niðurrifi á Lóuhlíð 1-3. 

Byggingaráform um niðurrif samþykkt. Að höfðu samráði við slökkviliðsstjóra er ekki fallist á áform um íkveikju til brunaæfingar. 

Fara þarf í öllu eftir ákvæðum um niðurrif úr lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. 

         
3.      Lóuhlíð 1-3 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif) - 2409007
    Fjarðarsteinn ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir niðurrifi á Lóuhlíð 1-3. 

Byggingaráform samþykkt. Að höfðu samráði við slökkviliðsstjóra er ekki fallist á áform um íkveikju. 

Fara þarf í öllu eftir ákvæðum um niðurrif úr lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.


4.      Staðarsund 3 - Umsókn um byggingarleyfi (Niðurrif) - 2408043
    Fyrir hönd eigenda sækir Þórunn Björg Ásmundardóttir um byggingarleyfi fyrir niðurrifi á Staðarsundi 3. 

Byggingaráform um niðurrif samþykkt. 

Fara þarf í öllu eftir ákvæðum um niðurrif úr lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. 
         
5.      Þórkatla - Fyrirspurn um niðurrif Vesturgata 3 - 2411024
    Þórkatla óskar eftir því við Grindavíkurbæ að bílskúr á Vesturgötu 3 verði afskráður. 

Málið var áður tekið fyrir í bæjarráði með svohljóðandi bókun: "Byggingarfulltrúi þarf að framkvæma lokaúttekt á niðurrifi mannvirkis áður en hægt sé að fjarlægja mannvirkið úr fasteignaskrá. Ekki er hægt að fjarlægja mannvirki úr fasteignaskrá ef það er enn til staðar". 

Forsvarsmenn Þórkötlu hafa verið upplýstir um bókun bæjarráðs á teamsfundi 19.11.2024. 

Beiðni um afskráningu er hafnað. Sækja þarf um byggleyfi fyrir niðurrifi ef þess er óskað.  
         
6.      Skil á lóð - Fálkahlíð 13-17 - 2411005
    Fyrir hönd Tilbreytingar ehf. sækir Aron Stefán Ólafsson um skil á lóðunum Fálkahlíð 13-17. 

Afgreiðslunefnd samþykkir umsókn um skil á lóðum. 

Gerð er krafa um að eigandi fjarlægi alla lausafjármuni og hreinsi rusl af lóðinni áður enn Grindavíkurbær tekur við lóðinni. 

Ef leyfi til að fara inn á lóð fæst ekki hjá öryggisstjóra vegna hættu þarf að gera samning við byggingarfulltrúa um að það verði gert seinna. 

         
7.      Skil á lóð - Efrahóp 23, Efrahóp 25 og Efrahóp 27 - 2411037
    Fyrir hönd Premium Properties ehf. sækir Sverrir Sigurjónsson um að skila lóðunum Efrahóp 23, Efrahóp 25 og Efrahóp 27. 

Afgreiðslunefnd samþykkir umsókn um skil á lóðinni Efrahóp 27. 

Gerð er krafa um að eigandi fjarlægi alla lausafjármuni og hreinsi rusl af lóðinni áður enn Grindavíkurbær tekur við lóðinni. 

Ef leyfi til að fara inn á lóð fæst ekki hjá öryggisstjóra vegna hættu þarf að gera samning við byggingarfulltrúa um að það verði gert seinna. 
         
8.      Staður laxeldisstöð - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2, - 2310098
    Fyrir hönd Samherja fiskeldi ehf, sækir Ingiþór Björnsson um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu (fóðurstöð) við fiskeldisstöðina á Stað samkvæmt teikningum frá Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 20.10.2022. 

Byggingaráform samþykkt. 

Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrðum 2.4.4.gr. sömu byggingarreglugerðar hafa verið uppfyllt. 
         
9.      Verklag fyrir niðurrif húsa eftir jarðhræringa - 2410017
    Verklag til niðurrifs lagt fram.
         


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30.


Elísabet Bjarnadóttir        Bjarni Rúnar Einarsson
Sigurður A Kristmundsson        Guðjón Bragason


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 11. febrúar 2026

Fundur 1702

Bæjarráð / 4. febrúar 2026

Fundur 1701

Bæjarstjórn / 27. janúar 2026

Fundur 592

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. janúar 2026

Fundur 93

Bæjarráð / 20. janúar 2026

Fundur 1700

Innviðanefnd / 19. janúar 2026

Fundur 13

Bæjarráð / 13. janúar 2026

Fundur 1699

Bæjarráð / 6. janúar 2026

Fundur 1698

Bæjarstjórn / 17. desember 2025

Fundur 591

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bæjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bæjarráð / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviðanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviðanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bæjarráð / 9. september 2025

Fundur 1689