Hjá þjónustuteymi Grindavíkinga er hægt er að bóka viðtal og fá upplýsingar og ráðgjöf vegna skóla- og tómstundastarfs, atvinnuleitar og virkni, húsnæðismála og sálræns- og félagslegs stuðnings.
Hægt er að óska eftir ráðgjöf með því að senda beiðni á hlekkinn hér eða hringja í síma 5450200 á milli 10:30 til 12:00 mánudaga til fimmtudaga. Einnig er hægt að senda þeim fyrirspurn á radgjof@grn.is
Þjónustuteymi Grindvíkinga var stofnsett 1. júní í þeim tilgangi að hlúa að íbúum Grindavíkur og stuðla að farsæld þeirra til framtíðar. Teymið samanstendur af sérfræðingum sem vinna að málum Grindvíkinga á þverfaglegan hátt og eru með fjölbreytta þekkingu og reynslu. Sérfræðingarnir eru sálfræðingar, félagsráðgjafar, lýðheilsufræðingur og sérfræðingur í skólamálum.
Þjónustuteymið getur einnig átt samskipti við sveitarfélög þar sem Grindvíkingar hafa komið sér fyrir, sé þess óskað.
Teymið er staðsett í Borgartúni 33.