Lýðheilsuvísar 2024 verða kynntir í dag föstudaginn 20. september kl. 11:00-13:00. Hægt verður að fylgjast með kynningunni í streymi af vef Landlæknisembættisins sem hægt er að sjá hér fyrir neðan.
Dagskrá:
Ávarp
Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar
Þegar dynur yfir samfélag - lýðheilsuvísar og áföll
Alma D. Möller, landlæknir
Lýðheilsuvísar tengdir samfélaginu og heilsu og sjúkdómum
Sigríður Haraldsd. Elínardóttir, sviðsstjóri heilbrigðisupplýsinga, embætti landlæknis
Lýðheilsuvísar tengdir lifnaðarháttum og líðan
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsusviðs, embætti landlæknis
Hagnýt notkun lýðheilsuvísa við skipulag heilbrigðisþjónustu HSS
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Birting lýðheilsuvísa 2024 - streymi
Lýðheilsuvísar eru safn mælikvarða sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan þjóðarinnar og tengda þætti. Birting lýðheilsuvísa eftir heilbrigðisumdæmum hefur verið árlegur viðburður síðan árið 2016 og annað árið í röð eru gefnir út lýðheilsuvísar fyrir fjölmennustu sveitarfélögin.
Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda sveitarfélögum, þ.m.t. Heilsueflandi samfélögum, og heilbrigðisþjónustu að greina stöðuna í sínu umdæmi, finna styrkleika og áskoranir og meta þarfir íbúanna þannig að hægt sé að vinna að bættri heilsu og líðan.