Fundur 1664

  • Bæjarráð
  • 4. september 2024

1664. fundur bæjarráðs Grindavíkur haldinn í Tollhúsi við Tryggvagötu, þriðjudaginn 3. september 2024 og hófst hann kl. 14:00.


Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson, formaður, Helga Dís Jakobsdóttir, varaformaður, í Teams, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður og Ásrún Helga Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi. 

Einnig sátu fundinn:
Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Fannar Jónasson, bæjarstjóri. 

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Dagskrá:

1.      Hús á sprungusvæðum í Grindavík - 2408033
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, Árni Þór Sigurðsson, FUMG, Gylfi Þór Þorsteinsson, FUMG, Fráfarandi sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs í Teams, hafnarstjóri og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar. 

Lagt fram minnisblað um uppgjör vegna húsa á hættusvæðum, dags. 27. ágúst 2024. 

Fyrirhugaður er vinnufundur Grindavíkurbæjar og Grindavíkurnefnarinnar um aðgerðir varðandi mannvirki á og við sprungur.
         
2.      Lokunarpóstar við Grindavík - 2409001
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, Árni Þór Sigurðsson, FUMG, Gylfi Þór Þorsteinsson, FUMG, fráfarandi sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs í Teams, hafnarstjóri og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar. 

Bæjarráð leggur áherslu á að bærinn verði opnaður sem fyrst fyrir almenningi og lokunarpóstarnir verði aflagðir í núverandi mynd.
         
3.      Verkefni skipulags- og umhverfissviðs - 2408032
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, sviðsstjórar Grindavíkurbæjar, launafulltrúi, sérfræðingur tæknideildar og forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar. 

Lögð fram greinargerð um stöðu mála á skipulags- og umhverfissviði og tillögur um nýtt skipulag á sviðinu, dags. 27. ágúst 2024. 

Bæjarráð samþykkir tillögurnar. 

         
4.      Niðurrif á Hópinu - 2406039
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, sviðsstjórar Grindavíkurbæjar, launafulltrúi, sérfræðingur tæknideildar, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar Grindavíkurbæjar og Skarphéðinn Berg Steinarsson, ráðgjafi. 

Lagt fram minnisblað frá umsjónamanni fasteigna Grindavíkurbæjar varðandi framtíð Hópsins, dags. 23.08.2024 og minnisblað frá Batteríinu um skipulag til framtíðar vegna aðgengis ferðamanna til að áhrif jarðskjálfta og eldgosa, dags. 10.07. 2024. 

Bæjarráð samþykkir að stofna vinnuhóp sem vinnur áfram með þær tillögur sem fram koma í minnisblöðunum og samþykkja eftirfarandi í hópinn: 
Elísabet Bjarnadóttir 
Sigurður Rúnar Karlsson 
Eggert Sólberg Jónsson 
Skarphéðinn Berg Steinarsson 
Fulltrúi bæjarstjórnar
         
5.      Félagsmál Grindavíkurbæjar - stöðuskýrsla - 2409003
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, sviðsstjórar Grindavíkurbæjar, launafulltrúi, sérfræðingur tæknideildar og skólastjóri tónlistarskólans í Grindavík. 

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs um verkefni á sviðinu, dags. 29. ágúst 2024.
         
6.      Starfsemi Grindavíkurbæjar - mannauður til framtíðar - 2408040
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, sviðsstjórar Grindavíkurbæjar, launafulltrúi og sérfræðingur tæknideildar. 

Farið yfir starfsemi og starfsmannahald næstu mánuði.
         
7.      Nafngiftir nýrra náttúrufyrirbæra - 2408042
    Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Guðjón Bragason, ráðgjafi, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sérfræðingur tæknideildar. 

Lagt fram minnisblað um nafngiftir nýrra náttúrufyrirbæra, dags. 30.08.2024.
         
8.      Aðstaða UMFG til æfinga og keppni - 2404147
    Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. 

Lagður fram leigusamningur við Kópavogsbæ vegna aðstöðu í íþróttahúsinu við Kársnesskóla með gildistíma 1. okt. 2024 til 31. maí 2025. 

Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.
         
9.      Áfangastaðurinn Grindavík í kjölfar náttúruhamfara - 2408038
    Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. 

Lagt fram minnisblað frá Batteríinu, dags. 10.07.2024 um framtíðarskipulag í Grindavík.
         
10.      Stjórn Knattspyrnudeildar Grindavíkur óskar eftir stuðningi - 2406086
    Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. 

Lagt fram erindi frá Stjórn knattspyrnudeildar UMFG varðandi styrk að fjárhæð 10.000.000 kr. 

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að vinna málið áfram.
         
11.      Viðburðir og samverustundir fyrir Grindvíkinga veturinn 2024-2025 - 2408035
    Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. 

Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fór yfir skipulag samverustunda veturinn 2024-2025. 

Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra að vinna málið áfram.
         
12.      Starfsstyrkir á frístunda- og menningarsviði 2025 - 2408037
    Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. 

Lagt fram yfirlit um tillögur að samstarfssamningum á árinu 2025 og áætluðum kostnaði vegna þeirra. 

Bæjarráð samþykkir að fela sviðsstjóra frístunda- og menningarnefndar að vinna málið áfram.
         
13.      Kvikan - Opnunartími veturinn 2024-2025 - 2408017
    Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs. 

Bæjarráð felur sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs að útfæra opnunartíma Kvikunnar þrjá til fjóra daga í viku frá og með 9. september nk. Tilgangur er að búa til samfélagsmiðstöð fyrir Grindvíkinga heima í Grindavík.
         
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 9. desember 2025

Fundur 1697

Afgreiðslunefnd byggingamála / 3. desember 2025

Fundur 92

Bæjarráð / 2. desember 2025

Fundur 1696

Innviðanefnd / 24. nóvember 2025

Fundur 12

Bæjarstjórn / 26. nóvember 2025

Fundur 590

Bæjarráð / 19. nóvember 2025

Fundur 1695

Bæjarráð / 11. nóvember 2025

Fundur 1694

Afgreiðslunefnd byggingamála / 28. október 2025

Fundur 90

Afgreiðslunefnd byggingamála / 21. júlí 2025

Fundur 89

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 88

Afgreiðslunefnd byggingamála / 7. apríl 2025

Fundur 87

Bæjarstjórn / 28. október 2025

Fundur 589

Bæjarráð / 21. október 2025

Fundur 1693

Bæjarráð / 14. október 2025

Fundur 1692

Innviðanefnd / 8. október 2025

Fundur 11

Bæjarstjórn / 30. september 2025

Fundur 588

Bæjarráð / 23. september 2025

Fundur 1691

Innviðanefnd / 8. september 2025

Fundur 10

Innviðanefnd / 17. september 2025

Fundur 9

Bæjarráð / 9. september 2025

Fundur 1689

Bæjarráð / 2. september 2025

Fundur 1688

Bæjarstjórn / 26. ágúst 2025

Fundur 587

Bæjarráð / 19. ágúst 2025

Fundur 1687

Bæjarráð / 15. júlí 2025

Fundur 1686

Bæjarráð / 2. júlí 2025

Fundur 1685

Bæjarráð / 18. júní 2025

Fundur 1684

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júní 2025

Fundur 87

Bæjarráð / 3. júní 2025

Fundur 1683

Bæjarstjórn / 27. maí 2025

Fundur 586

Bæjarstjórn / 20. maí 2025

Fundur 585