Fundur 569

  • Bæjarstjórn
  • 13. júní 2024

569. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í Tollhúsi við Tryggvagötu, fimmtudaginn 30. maí 2024 og hófst hann kl. 10:00.

Fundinn sátu: Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti, Birgitta H. Ramsay Káradóttir, aðalmaður, Hjálmar Hallgrímsson, aðalmaður, Helga Dís Jakobsdóttir, aðalmaður, Hallfríður G Hólmgrímsdóttir, aðalmaður, Birgitta Rán Friðfinnsdóttir, aðalmaður og Gunnar Már Gunnarsson, aðalmaður.

Einnig sátu fundinn: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Fannar Jónasson, bæjarstjóri og Guðjón Bragason, lögfræðingur.

Fundargerð ritaði:  Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Dagskrá:

1.      Ársuppgjör 2023 - Grindavíkurbær og stofnanir - 2403170

Gestir fundarins undir þessum dagskrárlið: Sigurjón Ö Arnarsson, endurskoðandi KPMG.

Til máls tóku: Ásrún, Sigurjón, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Hallfríður.

Lagt fram ársuppgjör Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2023.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

2.      Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024 - 2401118

Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, Hjálmar, Hallfríður, Gunnar Már, Birgitta Rán, Guðjón, og Birgitta Hrund.

Farið yfir stöðu mála.

3.      Þjónustumiðstöðin Tollhúsinu - opnunartími - 2404137

Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Gunnar Már, Birgitta Rán, Hjálmar, Helga Dís og Birgitta Hrund.

Drög að leigusamningi vegna Tollhússins eru lögð fram.

Bæjarstjóra er falið umboð til áframhaldandi viðræðna vegna leigu á Tollhúsinu.

4.      Tollhúsið - Framlína - 2404126

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Birgitta Hrund, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Hallfríður, Birgitta Rán, Hjálmar og bæjarstjóri.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að útfæra framlínu í samræmi við framlögð gögn og umræður á fundinum.

5.      Aukinn kostnaður grunnskóla í kjölfar náttúruhamfara í Grindavík - 2405123

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Guðjón.

Lögð fram greinargerð HLH vegna grunnskólabarna Grindavíkurbæjar. Bæjarstjóra er falið umboð til að ljúka málinu gagnvart sveitarfélögum sem hafa tekið inn grindvísk grunnskólabörn á þeim forsendum sem kynntar voru.

6.      Grunnskóli - Skólaárið 2024-2025 - 2405149

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Til máls tóku: Ásrún, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Hallfríður, Birgitta Hrund, Guðjón, Hjálmar og Birgitta Rán.

Sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs er falið að vinna málið áfram.

7.      Húsnæði í Grindavík fyrir lögreglu - 2405169

Gestur fundarins undir þessum dagskrárlið: Sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Til máls tóku: Ásrún, bæjarstjóri og Hjálmar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að lána lögreglunni á Suðurnesjum útistofu við grunnskóla Grindavíkur.

8.      Kosning í bæjarráð, sbr. 28. gr. og A lið 48. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar - 2205250

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Hjálmar, Birgitta Hrund, Helga Dís, Gunnar Már og Guðjón.

Bæjarstjórn frestar málinu.

9.      Kjör forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta - 2205257

Til máls tók: Ásrún. Bæjarstjórn frestar málinu.

10.      Fundargerðir 2024 - Svæðisskipulag Suðurnesja - 2404011

Til máls tók: Ásrún. undargerð 46. fundar Svæðisskipulags Suðurnesja, dags. 14. maí sl., er lögð fram til kynningar.

11.      Fundargerðir - Heklan 2023 - 2302019

Til máls tóku: Ásrún og bæjarstjóri.

Fundargerð 93. fundar Heklunnar, dags. 13. maí sl., er lögð fram til kynningar.

12.      Fundargerðir - Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 2024 - 2404095

Til máls tók: Ásrún.

Fundargerð 801. fundar Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, dags. 15. maí sl., er lögð fram til kynningar.

13.      Skipulagsnefnd - 131 - 2404006F

Til máls tóku: Ásrún, Hallfríður, Birgitta Hrund og Gunnar Már.

Fundargerðin er lögð fram.

14.      Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 79 - 2404013F

Til máls tók: Ásrún. Fundargerðin er lögð fram.

15.      Afgreiðslunefnd byggingar- og skipulagsmála - 80 - 2405014F

Til máls tók: Ásrún. Fundargerðin er lögð fram.

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:30.


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarstjórn / 25. mars 2025

Fundur 583

Bæjarráð / 11. mars 2025

Fundur 1678

Bæjarráð / 4. mars 2025

Fundur 1677

Bæjarstjórn / 26. febrúar 2025

Fundur 582

Bæjarráð / 18. febrúar 2025

Fundur 1676

Innviðanefnd / 17. febrúar 2025

Fundur 5

Bæjarstjórn / 28. janúar 2025

Fundur 581

Bæjarráð / 21. janúar 2025

Fundur 1675

Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. janúar 2025

Fundur 86

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júlí 2024

Fundur 82

Afgreiðslunefnd byggingamála / 29. maí 2024

Fundur 81

Afgreiðslunefnd byggingamála / 27. maí 2024

Fundur 80

Afgreiðslunefnd byggingamála / 18. apríl 2024

Fundur 79

Afgreiðslunefnd byggingamála / 29. nóvember 2024

Fundur 85

Afgreiðslunefnd byggingamála / 20. nóvember 2024

Fundur 84

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. ágúst 2024

Fundur 83

Afgreiðslunefnd byggingamála / 8. júní 2023

Fundur 73

Afgreiðslunefnd byggingamála / 11. maí 2023

Fundur 72

Innviðanefnd / 16. desember 2024

Fundur 3

Innviðanefnd / 15. janúar 2025

Fundur 4

Bæjarráð / 14. janúar 2025

Fundur 1674

Samfélagsnefnd / 15. janúar 2025

Fundur 4

Bæjarráð / 7. janúar 2025

Fundur 1673

Bæjarstjórn / 17. desember 2024

Fundur 580

Samfélagsnefnd / 11. desember 2024

Fundur 3

Bæjarstjórn / 28. nóvember 2024

Fundur 579

Bæjarráð / 12. nóvember 2024

Fundur 1670, bæjarráð

Innviðanefnd / 18. nóvember 2024

Fundur 2, Innviðanefnd

Bæjarráð / 5. nóvember 2024

Fundur 1669

Bæjarstjórn / 29. október 2024

Fundur 578