Fundur 129

  • Skipulagsnefnd
  • 24. maí 2024

129. fundur skipulagsnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 21. febrúar 2024 og hófst hann kl. 14:00.


Fundinn sátu:
Lilja Ósk Sigmarsdóttir, formaður, Sverrir Auðunsson, varamaður, Hrannar Jón Emilsson, aðalmaður, Steinberg Reynisson, aðalmaður, og Unnar Á. Magnússon, aðalmaður. 

Einnig sátu fundinn:
Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, Hjörtur Már Gestsson, byggingarfulltrúi og Elísabet Bjarnadóttir, sérfræðingur skipulags- og umhverfissviðs. 

Fundargerð ritaði:  Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.

Í upphafi fundar óskaði formaður eftir heimild til að taka inn mál á dagskrá með afbrigðum sem síðasta mál: Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar - Ósk um umsögn á lýsingu fyrir miðsvæði Vatnsnes, nr. 2402041

Dagskrá:

1.      Jarðskjálftar, landris og eldgos í Grindavík 2024 - 2401118
    Guðjón Bragason sat fundinn undir dagskrárliðnum. 

Staðan í Grindavík vegna náttúruhamfara í Grindavík meðal annars m.t.t. byggingar- og skipulagsmála rædd.
         
2.      Uppbygging varnargarða til varnar Grindavíkur - 2402014
    Staðan á uppbyggingu varnargarða um Grindavík til umræðu. 

Skipulagsnefnd lýsir yfir ánægju sinni með þær framkvæmdir sem þegar hafa átt sér stað við varnargarða. Nefndin hvetur til þess að lokið verði við gerð varnargarðanna sem fyrst. 
         
3.      Tjón á mannvirkjum vegna náttúruhamfara í Grindavik - 2312003
    Rætt um þær ákvarðanir sem bæjarstjórn hefur tekið varðandi endurbyggingar- og viðgerðarskyldu á altjónshúsum, sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 55/1992 um NTÍ. Einnig var rætt um það með hvaða hætti skipulagsnefnd sér fyrir sér að standa eigið að niðurrifi altjónshúsa. 

Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram. 


         
4.      Niðurrif húsa undir hrauni - 2402032
    Guðjón Bragason sat fundinn undir dagskrárliðnum. 

Hrannar Jón Emilsson vék af fundi við umræður og afgreiðslu málsins. 

Minnisblað frá byggingarfulltrúa lagt fram, skipulagsnefnd er samþykk þeirri útfærslu sem þar er lýst. 

Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. 

         
5.      Óleyfisframkvæmdir í Grindavík - 2402023
    Guðjón Bragason sat fundinn undir dagskrárliðnum. 

Rætt um stöðu skráninga á fasteignum og óleyfisframkvæmdir þeim tengdum. 

Byggingarfulltrúa og skiplagsfulltrúa falið að vinna málið áfram meðal annars með því að leita álits hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Skipulagsstofnun. 
         
6.      Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar - Ósk um umsögn á lýsingu fyrir frístundabyggð í landi Hvamms og íbúðarbyggð í landi Seljavogar 2a - 2402031
    Lögð var fram skipulagslýsing á aðalskipulagsbreytingu fyrir tvö mál í Höfnum. Annars vegar að taka 0,34 ha af skilgreindu opnu svæði og 0,06 ha af svæði fyrir samfélagsþjónustu í landi Hvamms (samtals 0,4 ha) og breyta í frístundabyggð. Hins vegar að 0,8 ha af opnu svæði í landi Seljavogs 2a verði breytt í íbúðarbyggð. 

Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna. 

Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. 
         
7.      Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar - Ósk um umsögn á lýsingu fyrir Keflavíkurborgir - 2402029
    Lögð var fram skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar og nýs deiliskipulags fyrir íbúðarbyggð í Keflavíkurborgum í Reykjanesbæ, dags. 10.11.2023. 
Fyrirhugað er að stækka núverandi íbúðarsvæði um 24 ha og verði það alls 29 ha. 

Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna. 

Málinu er vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. 
         
8.      Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar - Ósk um umsögn á lýsingu fyrir miðsvæði Vatnsnes - 2402041
    Lögð var fram lýsing á aðalskipulagsbreytingu á miðsvæði Vatnsness í Reykjanesbæ. Núgildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir 600 íbúðum á svæðinu sem er um 18,5 ha. Við breytinguna fjölgar íbúðum í 1250 og heildar byggingarmagn eykst í það sem nemur fjölda íbúða ásamt annarri þjónustu á svæðinu. 

Skipulagsnefnd Grindavíkurbæjar gerir ekki athugasemd við lýsinguna 

Málinu er vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
         
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30.

 


Deildu þessari frétt

AÐRAR FUNDARGERÐIR

Bæjarráð / 10. apríl 2025

Fundur 1680

Innviðanefnd / 26. mars 2025

Fundur 6

Bæjarstjórn / 25. mars 2025

Fundur 583

Bæjarráð / 11. mars 2025

Fundur 1678

Bæjarráð / 4. mars 2025

Fundur 1677

Bæjarstjórn / 26. febrúar 2025

Fundur 582

Bæjarráð / 18. febrúar 2025

Fundur 1676

Innviðanefnd / 17. febrúar 2025

Fundur 5

Bæjarstjórn / 28. janúar 2025

Fundur 581

Bæjarráð / 21. janúar 2025

Fundur 1675

Afgreiðslunefnd byggingamála / 16. janúar 2025

Fundur 86

Afgreiðslunefnd byggingamála / 5. júlí 2024

Fundur 82

Afgreiðslunefnd byggingamála / 29. maí 2024

Fundur 81

Afgreiðslunefnd byggingamála / 27. maí 2024

Fundur 80

Afgreiðslunefnd byggingamála / 18. apríl 2024

Fundur 79

Afgreiðslunefnd byggingamála / 29. nóvember 2024

Fundur 85

Afgreiðslunefnd byggingamála / 20. nóvember 2024

Fundur 84

Afgreiðslunefnd byggingamála / 26. ágúst 2024

Fundur 83

Afgreiðslunefnd byggingamála / 8. júní 2023

Fundur 73

Afgreiðslunefnd byggingamála / 11. maí 2023

Fundur 72

Innviðanefnd / 16. desember 2024

Fundur 3

Innviðanefnd / 15. janúar 2025

Fundur 4

Bæjarráð / 14. janúar 2025

Fundur 1674

Samfélagsnefnd / 15. janúar 2025

Fundur 4

Bæjarráð / 7. janúar 2025

Fundur 1673

Bæjarstjórn / 17. desember 2024

Fundur 580

Samfélagsnefnd / 11. desember 2024

Fundur 3

Bæjarstjórn / 28. nóvember 2024

Fundur 579

Bæjarráð / 12. nóvember 2024

Fundur 1670, bæjarráð

Innviðanefnd / 18. nóvember 2024

Fundur 2, Innviðanefnd